Fotbolti.net
Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
Pepsi Max-deild karla
Greifavöllurinn
5° hiti, norðanvindur og rigning. Þetta er ekki sambastemning.
KA
KA
4 - 2
Stjarnan
Stjarnan
Hallgrímur Mar Steingrímsson (misnotað víti) 6'Hallgrímur Mar Steingrímsson 6'1 - 0Hallgrímur Mar Steingrímsson 14'2 - 02 - 118' Þorsteinn Már Ragnarsson 44' Daníel Laxdal Torfi Tímoteus Gunnarsson 50'3 - 13 - 264' Þorsteinn Már Ragnarsson Elfar Árni Aðalsteinsson 68'4 - 2
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 244
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Frábær skemmtun á Greifavelli

Hvað réði úrslitum?

KA-menn virkuðu tilbúnari í bardagann. Aðstæður á Greifavellinum voru ekkert til þess að hrópa húrra fyrir og áferðarfallegur fótbolti var ekki líklegur. Heimamenn unnu fleiri tæklingar og fleiri seinni bolta og það taldi stórt í dag. Auk þess var Hallgrímur Mar Steingrímsson í banastuði og lagði upp hvert færið af fætur öðru. Þá hjálpaði það Stjörnunni ekki að Daníel Laxdal skyldi fá rautt spjald á 44. mínútu.

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Hann gæti spilað á regnvotu þriðjudagskvöldi í Stoke. Það er alveg klárt. Hann var skapandi allan leikinn og þá sérstaklega í síðari hálfleik þegar að leikurinn opnaðist og það teygðist á Stjörnumönnum, þegar þeir freistuðu þess að jafna. Tvö mörk og stoðsending er býsna gott dagsverk!

2. Elfar Árni Aðalsteinsson

Fyrir utan það að vera góður knattspyrnumaður, að þá er Elfar Árni klafskóngur og á ákaflega auðvelt með að aðlaga sig að svona erfiðum aðstæðum eins og voru í dag. Hann lét varnarmenn Stjörnunnar ekki í friði og skoraði glæsilegt mark.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins. Daníel Laxdal átti hræðilega sendingu aftur á Harald, sem að Elfar Árni komst inní og Daníel tók Elfar niður inní vítateig. Vítaspyrna dæmd og KA komnir yfir. Haraldur náði reyndar að verja víti Hallgríms, en KA-maðurinn var fyrstur á boltann og skoraði.

Hvað þýða úrslitin?

KA lyftir sér allavega tímabundið upp fyrir Grindavík og sitja í 10. sæti deildarinnar með 19 stig. KA eiga útileik gegn Eyjamönnum næst, sem að verður að teljast dauðafæri fyrir KA-menn til þess að ná í önnur þrjú stig. Garðbæingar eru í 4. sæti með 24 stig. Stjarnan á heimaleik gegn Skagamönnum sem eru ekki á góðri siglingu um þessar mundir.

Vondur dagur

Daníel Laxdal verður að fá þessa viðurkenningu í dag. Hann vill sennilega gleyma þessum leik sem fyrst. Hann gefur víti og fær rautt spjald, sem skildi Stjörnuna eftir í vondum málum. Vallaraðstæður hjálpuðu honum þó ekki.

Dómarinn - 8

Ekki auðveldur leikur að dæma, en Ívar Orri komst mjög vel frá sínu verkefni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.