Fotbolti.net
Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Pepsi Max-deild karla
Norðurálsvöllurinn
Þéttur vindur á hlið á völlinn, kalt, þurrt og völlurinn flottur.
ÍA
ÍA
1 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 14' Thomas Mikkelsen0 - 27' Höskuldur GunnlaugssonTryggvi Hrafn Haraldsson (víti) 10'1 - 2
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

SKÝRSLAN: Blikar minnka forskotið hjá KR

Hvað réði úrslitum?

Breiðablik skoraði fleiri mörk en Skaginn, ekki flókið! Voru miklu betri í fyrri hálfleik og áttu að skora fleiri mörk.

Bestu leikmenn

1. Höskuldur Gunnlaugsson(Breiðablik)

Höskuldur var mjög góður í þessum leik. Sífellt ógnandi og skoraði geggjað mark!

2. Árni Snær Ólafsson(ÍA)

Árni flottur í þessum leik. Gat ekkert gert við þessum mörkum og varði alla vega tvisvar frá Blikum í dauðafæri!

Atvikið

Vítið sem ÍA fékk. Virkaði alla vega úr stúkunni mjög soft víti. Jói Kalli er búinn að láta dómarana heyra það í viðtölum fyrir að fá ekki víti og fékk það í dag þegar það var sennilega ekki víti.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar styrkja stöðu sína í öðru sæti og minnka forstkot KR á toppnum í 7 stig þar sem KR tapaði í dag. Skagamenn færast hins vegar nær fallsvæðinu.

Vondur dagur

Jóhann Ingi dómari átti bara alls ekki góðan dag. Dæmir mjög soft víti og margar skrýtnar ákvarðanir útá vellinum líka.

Dómarinn - 4

Bara mjög slakur dagur hjá Jóhanni. Margar bara hreinlega rangar ákvarðanir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.