Fotbolti.net
Helga Katrín Jónsdóttir
Helga Katrín Jónsdóttir
Pepsi-Max deild kvenna
Kópavogsvöllur
Skítaveður, rigning og rok
Breiðablik
Breiðablik
2 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Agla María Albertsdóttir 20'1 - 0Alexandra Jóhannsdóttir 60'2 - 0
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Mikilvægur Blikasigur í toppbaráttunni

Hvað réði úrslitum?

Blikar eru með sterkara lið. Stjarnan byrjaði leikinn ágætlega og áttu allavega tvö góð færi og hefðu vel getað komist yfir í leiknum. Blikar stjórna þó leiknum allan tímann og eftir að Agla kemur þeim yfir eftir 20 mínútur þá fannst mér í raun aldrei spurning hvort liðið tæki stigin þrjú með heim.

Bestu leikmenn

1. Agla María Albertsdóttir

Gríðarlega dugleg allan leikinn og gerði varnarmönnum Stjörnunnar oft erfitt fyrir. Skoraði fyrsta mark leiksins.

2. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir

Mjög spræk í leiknum og komst trekk í trekk upp hægri vænginn. Átti tvær stoðsendingar í leiknum.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins. Stjarnan flottar fyrir það mark og höfðu átt hættulegri færi en þá kom Agla og braut ísinn fyrir Breiðablik. Eftir það fannst mér Stjarnan lítið geta

Hvað þýða úrslitin?

Blikar eru áfram í 2. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Vals. Stjarnan fellur niður í 7. sæti en eru með jafnmörg stig og KR sem situr í 6. sæti en lakari markatölu.

Vondur dagur

Mér fannst enginn eiga neitt áberandi vondan dag í dag. Það var kannski helst veðrið sem var vont í dag

Dómarinn - 7

Ein og ein ákvörðun sem ég var ekki alveg sammála en á heildina litið komust þeir ágætlega frá þessu. Stjarnan vildi fá víti rétt áður en Blikar komast yfir en Gunnar stendur alveg við þetta og dæmir ekkert. Mér fannst það vera rétt ákvörðun við fyrstu sýn en þyrfti að sjá þetta aftur til að geta fullvissað mig um það.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.