Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Pepsi-Max deild kvenna
Würth völlurinn
Fylkir
Fylkir
1 - 5
Valur
Valur
0 - 126' Elín Metta Jensen 0 - 231' Hlín Eiríksdóttir 0 - 338' Elín Metta Jensen 0 - 462' Elísa Viðarsdóttir 0 - 569' Hlín Eiríksdóttir Marija Radojicic 70'1 - 5
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: Auðveldur Valssigur í Árbænum

Hvað réði úrslitum?

Valur fékk miklu hættulegri og betri færi, vegna þess að þær voru hreinlega mun betri, gæðin sýndu það.

Bestu leikmenn

1. Elín Metta Jensen (Valur)

Elín Metta var frábær í dag, skoraði tvö, lagði upp fleiri færi og klaufi að skora ekki þriðja... Alltaf hættuleg!

2. Hlín Eiríksdóttir (Valur)

Hlín skoraði líka tvö, bjó til helling af færum og var alltaf ógnandi, verð samt líka að minnast á Fanndísi sem átti hrikalega flottan leik!

Atvikið

Hugsa að ég setji þetta bara á markið hjá Elísu Viðars, hún skorar ekki á hverjum degi!

Hvað þýða úrslitin?

Valur heldur sinni vegferð áfram í átt að íslandsmeistaratitlinum á meðan að Fylkir siglir lygnan sjó um miðja deild.

Vondur dagur

Nokkrar sem áttu ekki merkilegan dag, Adda var léleg í fyrri hálfleik hjá Val, frekar ólík sjálfri sér. Varnarlína Fylkis var ekki góð og gaf alltof mörg færi á sér og svo var veðrið alveg glatað.

Dómarinn - 5

Ekkert merkileg dómgæsla, nokkrar rangstæður sem ég set spurningamerki við og svo vildi Kjartan fá víti í leiknum sem ég get ekki alveg kommentað á.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.