Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi Max-deild karla
Víkingsvöllur
Suðaustan strekkingur og úrhelli. Rennblaut teppi
Víkingur R.
Víkingur R.
1 - 0
Grindavík
Grindavík
Ágúst Eðvald Hlynsson 80'1 - 0
Dómari: Erlendur Eiríksson

SKÝRSLAN: Gæðastund Vikinga í golunni

Hvað réði úrslitum?

Augnablikið var Víkinga. Ein mistök og einbeitingarleysi reyndust Grindvíkingun dýr i kvöld. Tókst ekki að hreinsa fyrirgjöf Davíðs Arnar lengra en að vítapunkti þar sem Ágúst Hlynsson þakkaði fyrir sig og skoraði.

Bestu leikmenn

1. Ágúst Hlynsson

Skoraði auðvitað markið en hann er sömuleiðis að skapa svo mikið fyrir menn í kringum sig. Hreyfir sig vel án bolta og er duglegur að finna sér svæði til að vinna í. Virtist fíla sig í úrhellinu og rokinu.

2. Kári Árnason

Skýlir vörn Víkinga rosalega vel á miðjunni, góðar sendingar og bara hrikalega fastur fyrir.

Atvikið

Sigurmark Víkinga var af mikilvægustu sort og gæti ráðið úrslitum þegar upp er staðið að móti loknu.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar lyfta sér upp í 8.sætið og setja 4 stig milli sín og Grindavíkur sem er í vondum málum í 11.sæti

Vondur dagur

Leikurinn var vel leikinn af báðum liðum miðað við aðstæður svo þeir sem áttu vondan dag sátu á bekknum. Með vindinn og regnið í fangið hefur þeim eflaust verið kalt. Ættu að fá sér kakóbolla þegar heim er komið.

Dómarinn - 8

Elli var bara fínn í kvöld. Víkingar kölluðu tvisvar eftir vítaspyrnu þegar boltinn virtist hafa farið í hönd Grindvíkings en ég held að Erlendur hafi verið með þetta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.