Fotbolti.net
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Pepsi-Max deild kvenna
Nettóvöllurinn
Suð-Austan 13 m/s
Keflavík
Keflavík
1 - 2
KR
KR
0 - 18' Grace MaherAmelía Rún Fjeldsted 34'1 - 11 - 278' Katrín Ómarsdóttir
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson

SKÝRSLAN: Iðnarðarsigur KR í Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Gæðin og reynslan í Katrínu Ómars gerði herslumuninn í annars mjög jöfnum leik, mark og stoðsending frá Katrínu skildi liðin að í dag.

Bestu leikmenn

1. Katrín Ómarsdóttir

Skapaði mest allt fyrir KR og hver sendingin á fætur annari heppnaðist hjá henni, lagði einnig upp mark KR í leiknum og skoraði markið sem tryggði KR sigurinn.

2. Kristrún Ýr Holm

Rosalega öflug í hjarta varnarinnar hjá Keflavík, hreinsaði allt í burtu sem kom nálægt henni, rosalega örugg í öllum sínum gjörðum, lítið við hana að sakast í mörkunum sem Keflavík fengu á sig

Atvikið

Vítaspyrnan sem Ásmundur dæmdi á 78. mínutu sem réði úrslitum í dag.

Hvað þýða úrslitin?

Úrsltin þýða að Keflavík eru en í fallsæti 2 stigum á eftir ÍBV sem eiga leik til góða. KR eru um miðja deild í 6. sæti, 6 stigum frá falli en eiga erfiðan leik við Þór/KA í næstu umferð.

Vondur dagur

Erfitt að finna leikmann sem átti vondan dag en Aytac markmaður Keflavíkur hefði átt að gera mun betur í fyrsta markinu sem Keflavík fékk á sig sem kom KR á bragðið.

Dómarinn - 7,0

Ásmundur dæmdi þennan leik bara vel í dag, ekki mikið að gera en það sem hann dæmdi þá dæmdi hann vel. Sýndist vítaspyrnudómurinn vera réttur
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.