Fotbolti.net
Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
Pepsi Max-deild karla
Greifavöllurinn
Nokkuð sterk suð-austan átt og 8 gráður, smá rigning. Þetta er íslenskt haust.
KA
KA
1 - 1
HK
HK
Ásgeir Sigurgeirsson 8'1 - 075' Björn Berg Bryde1 - 196' Emil Atlason
Dómari: Erlendur Eiríksson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Flautumark HK á Greifavellinum

Hvað réði úrslitum?

HK-ingar gáfust ekki upp. KA menn fengu heldur betur tækifærin til þess að loka þessum leik, en nýttu þau ekki og 1-0 staða er hættuleg hvort sem að þú ert einum manni eða þremur mönnum fleiri.

Bestu leikmenn

1. Elfar Árni Aðalsteinsson

Gerði varnarmönnum HK lífið leitt allan leikinn. Hefði átt að skora í leiknum og var jafnframt mjög skapandi fyrir liðsfélaga sína.

2. Arnar Freyr Ólafsson

Markmaðurinn hélt HK inní þessu á lykilstundum. Varði skalla Elfars Árna meistaralega og var öruggur í öllum sinum aðgerðum.

Atvikið

Jöfnunarmark HK. Þvílík dramatík þegar Emil skallaði boltann framhjá Jajalo. Stuðningsmenn HK í stúkunni gjörsamlega sturluðust úr fögnuði.

Hvað þýða úrslitin?

HK fara uppí 5. sætið, allavega um stundarsakir, en KA menn verða að gera sér 10. sætið að góðu. Ef að KA hefðu hangið á þessu, þá væru þeir í 5. sæti en Emil Atlason hélt nú ekki. KA eiga útileik gegn nýkrýndum bikarmeisturum Víkings R. en HK fá Skagamenn í heimsókn. Tvær umferðir eftir og Grindavík þurfa að vinna upp 7 stiga forskot KA á liðið.

Vondur dagur

Björn Berg Bryde fékk rautt spjald og skildi HK eftir í holu sem að þeir klifruðu svo uppúr, blessunarlega fyrir hann. Hann var klaufalegur í þessum tveimur brotum á Elfari Árna, en átti ekki slæman leik þrátt fyrir það.

Dómarinn - 6

Ágæt frammistaða hjá Erlendi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.