SKÝRSLAN: Selfoss er þriðja besta lið landsins
Hvað réði úrslitum?
Ákveðni og baráttuandi Selfyssinga fór langt með að ráða úrslitum. Þær virtust einfaldlega betur gíraðar í verkefnið. Þetta var ekki fallegur fótboltaleikur enda aðstæður erfiðar en Selfyssingar gerðu það sem þurfti til.
Bestu leikmenn
1. Karitas Tómasdóttir
Vélin á miðjunni fór mikinn. Gestirnir áttu miðjuna enda erfitt að komast í gegnum Karitas í stuði. Auk vinnuseminnar sem einkennir leikmanninn átti hún nokkur góð hlaup fram völlinn sem sköpuðu hættu.
2. Allison Murphy
Allison fær titilinn fyrir mörkin tvö sem skildu liðin að. Hennar fyrstu mörk fyrir Selfoss. Sitt af hvoru tagi, ein klárun í teignum og eitt hárnákvæmt skot rétt utan teigs.
Atvikið
Brynja Valgeirsdóttir braut á Guðmundu Brynju sem var við það að sleppa í gegn. Brynja virtist aftasti varnarmaður og hefði því samkvæmt reglubókinni átt að fá rautt spjald. Hún slapp hinsvegar með gult við litla hrifningu KR-inga.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss tryggir sér 3. sæti deildarinnar. Frábær árangur hjá liðinu sem varð einnig Bikarmeistari.
Vondur dagur
KR-liðið var undir í allri baráttu í dag. Sérkennilegt í ljósi þess að leikmenn höfðu beðið í tæpan mánuð eftir tækifæri til að hefna fyrir tap í bikarúrslitum. Gloria Douglas hefur iðulega verið öflug í KR-liðinu en henni leið ekki vel á sleipu grasinu í dag og átti erfitt með að fóta sig. Þá var leiðinlegt fyrir Guðmundu Brynju að ná ekki að setja mark sitt á leikinn en hún kom sér í nokkur fín færi án þess að ná að klára þau.
Dómarinn - 5
Það vantaði uppá dómgæsluna í dag. Stærsta ákvörðunin sem virtist ekki rétt var þegar Guðni Þór ákvað að sleppa aftasta varnarmanni Selfoss með gult eftir að hafa rænt KR-inga marktækifæri.



