Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Pepsi-Max deild kvenna
Kópavogsvöllur
Hvasst og kalt, gæti verið talsvert betra.
Breiðablik
Breiðablik
1 - 1
Valur
Valur
0 - 141' Fanndís Friðriksdóttir Heiðdís Lillýardóttir 95'1 - 1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Dramatík kom í veg fyrir Íslandsmeistaratitil!

Hvað réði úrslitum?

Færanýting Blikaliðsins var ekki góð og tókst þeim ekki að skora fyrr en það voru komnar 95 mínútur á klukkuna, þrátt fyrir haug af flottum færum á meðan að Valur refsaði í einum af þeim fáu sénsum sem þær fengu.

Bestu leikmenn

1. Sandra Sigurðardóttir (Valur)

Sandra var öryggið uppmálað allan leikinn og greip vel inní, gat ekkert gert við þessum skalla í lokin en boltinn er sennilega ennþá fastur í sammanum.

2. Heiðdís Lillýardóttir (Breiðablik)

Heiðdís var mjög góð í leiknum, hljóp Elín Mettu uppi í fyrri hálfleik og bjargaði þar marki, skoraði jöfnunarmarkið sem heldur veikri von Blika á lífi en gerði samt ein mistök sem hefðu getað orðið dýr þegar Margrét Lára hirti af henni boltann, það má nefna Hildi Antons hér líka sem stjórnaði leiknum og var öflug í Blikaliðinu.

Atvikið

Vítaspyrna? - Mér fannst Hildur eiga að fá víti sem Ívar dæmir ekki og Valskonur bruna upp völlinn og komast yfir, mjög dýrt fyrir Blika ef þetta var röng ákvörðun hjá Ívari Orra.

Hvað þýða úrslitin?

Blikavonin lifir en hún er afskaplega veik, Valskonur eru komnar með níu og hálfan putta á titilinn!

Vondur dagur

Mér fannst Lillý Rut ekki sjálfri sér lík í dag, var að missa sendingar í gegnum sig, braut mjög líklega á Hildi þegar mér fannst Blikar eiga að fá víti og var almennt í einhverjum vandræðum, Adda sást ekki inná vellinum, held hún hafi varla snert boltann, Dóra María og Margrét Lára sáust lítið en Margrét þó mest áberandi af miðjumönnum Vals, Agla María átti ekki heppnaða hornspyrnu í fyrri hálfleik af nokkrum en lagði svo jöfnunarmarkið upp þannig það er eflaust hægt að fyrirgefa það.

Dómarinn - 5

Ívar vinur minn hefur átt betri leiki, Fanndís hefði átt að vera löngu komin með gult og örugglega seinna gula líka en á einhvern óskiljanlegan hátt var Ívar ekki sammála öllum öðrum á vellinum, ég er á því að Blikar hafi átt að fá víti líka, þetta eru svona stóru punktarnir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.