SKÝRSLAN: Keflavík féll þrátt fyrir góðan sigur
Hvað réði úrslitum?
Keflavík er með fleiri gæða leikmenn og það skar á milli í dag. Aytac Sharifova markvörður komst ekki á lista yfir tvo bestu leikmenn en var í sama gæðaflokki og varði oft á tíðum glæsilega.
Bestu leikmenn
1. Natasha Anasi (Keflavík)
Skoraði tvö mörk og átti virkilega góðan leik á miðjunni.
2. Sveindís Jane Jónsdóttir (Keflavík)
Frábær í dag, skoraði, lagði upp og það þurfti marga leikmenn HK/Víkings til að halda aftur af henni. Stórhættuleg innköst.
Atvikið
Stóra atvikið var fyrir leik þegar tekin var ákvörðun um að færa leikinn í Reykjaneshöllina hálftíma fyrir leik. Liðin brunuðu þangað og voru mætt áður en húsið opnaði. Eftir korters frestun hófst leikurinn loksins.
Hvað þýða úrslitin?
Í raun þýða úrslit leiksins í dag ekki neitt, því stóru tíðindin gerðust í Eyjum þar sem ÍBV vann Fylki og felldi þar með Keflavík. HK/Víkingur var í botnsætinu fyrir leik og falla með þeim.
Vondur dagur
Rakel Logadóttir þjálfari HK/Víkings var beðin um viðtal við Fótbolta.net eftir leik og bað um að fá að ræða við liðið og svo kæmi hún. Þegar okkur fór að lengja eftir henni var bankað á klefa liðsins og hún hafði þá stungið af heim. Þegar gerð er krafa um meiri umfjöllun um deildina er lágmarkskrafa að þjálfarar liðanna taki þátt í henni með því að gefa kost á sér en stinga ekki af.
Dómarinn - 7
Solid leikur hjá dómaranum og lítið út á hann að setja.



