Fotbolti.net
Rögnvaldur Már Helgason
Pepsi-Max deild kvenna
Þórsvöllur
Stíf sunnanátt og rigning
Þór/KA
Þór/KA
0 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Andleysið allsráðandi á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

Það var ekki að sjá að liðin vildu virkilega fá þrjú stig úr þessum leik í dag.

Bestu leikmenn

1. Birta Guðlaugsdóttir

Stóð sig vel í markinu, greip vel inn í fyrirgjafir og varði allt sem á markið kom. Ekki erfiðustu skotin í dag, en það þarf að verja þau líka.

2. Lára Kristín Pedersen

Var öflug djúpt á miðjunni og dreifði spilinu vel, þó hún hafi lítið haft sig frammi í sókninni. Kletturinn í liði Þórs/KA.

Atvikið

Shameeka klúðraði dauðafæri í fyrri hálfleik og það hefði breytt þessum leik mikið að fá þar mark.

Hvað þýða úrslitin?

Ekkert. Staða liðanna í deildinni breytist nánast ekkert, nema kannski að það er útséð með að Þór/KA geti stolið þriðja sætinu.

Vondur dagur

Sóknarlínur beggja liða fá þennan stimpil. Þegar Þór/KA komst í færi nýttu þær þau öll mjög illa. Stjörnukonur fengu dauðafæri í fyrri hálfleik en nýttu ekki sín færi.

Dómarinn - 7

Tíðindalítill leikur af hans hálfu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.