Fotbolti.net
@fotboltinetVíðir Gunnarsson
ÍBV
ÍBV
Lengjudeild karla
Hásteinsvöllur
2 - 0
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Gary John Martin 49'1 - 0Gary John Martin 83'2 - 0
Dómari: Valdimar Pálsson
Leik lokið!
Leikurinn klárast með 2-0 sigri eyjamanna
90. mín
Frábær varsla hjá Brynjari, eftir geggjaða skyndisókn leggur Glenn boltann á Nökkva á vítapunktinum, en aftur ver Brynjar frábærlega
90. mín
Víkingar fá hornspyrnu eftir að eyjamenn hreinsa frá fyrirgjöf
90. mín
Víkingar fá horn, spila því stutt og reyna að komast framhjá Róberti en verst hann vel og endar boltinn í horni
89. mín
Hún endar í innkasti Víkings við hitt horn eyjamanna
89. mín
Víkingar fá hornspyrnu
88. mín
Guðjón í dauðafæri, eftir skyndisókn eyjamanna endar Guðjón einn a móti Brynjari en Brynjar gerir sig stóran og ver vel
ÍBV
87. mín
InnRóbert Aron Eysteinsson
ÚtFelix Örn Friðriksson
86. mín
Víkingar í góðu færi, ná þeir fyrirgjöf og ná skotinu, en fer það yfir markið
ÍBV
83. mín
MAAAARK!

Gary John Martin (stoðsending: Telmo Ferreira Castanheira)

Gary Martin setur annað mark eyjamanna, eftir smá heppni á miðjunni, Telmo og miðjumaður Víkings fara í lausa sendingu og skoppar boltinn yfir vörn Víkinga og er Gary Martin mættur og leggur hann fram hjá Brynjari, vel gert
82. mín
Eyjamenn nálægt því aftur, eftir fyrirgjöf Guðjóns er Felix mættur á fjær en skotið laust og auðvelt fyrir Brynjar í markinu
ÍBV
81. mín
InnNökkvi Már Nökkvason
ÚtÓskar Elías Zoega Óskarsson
80. mín
Eftir hættulega sókn Víkings ná eyjamenn að koma boltanum í burtu rétt áður en Víkingur nær skotinu
Víkingur Ó.
78. mín
InnBjartur Bjarmi Barkarson
ÚtVitor Vieira Thomas
Víkingur Ó.
78. mín
InnÍvar Reynir Antonsson
ÚtDaníel Snorri Guðlaugsson
76. mín
Boltinn endar í fanginu á Brynjari eftir langa sókn eyjamanna og fyrirgjöf Felix
ÍBV
74. mín
Gult spjald

Tómas Bent Magnússon

Hann var ekki lengi að næla sér í gult spjald
73. mín
Víkingar með skot sem er framhjá
72. mín
Víkingar með fyrirgjöf sem endar beint í fanginu á Halldóri
ÍBV
69. mín
InnJonathan Ricardo Glenn
ÚtJose Enrique Seoane Vergara
ÍBV
69. mín
InnTómas Bent Magnússon
ÚtVíðir Þorvarðarson
68. mín
Brynjar gerir vel eftir skalla eyjamanna, keyrir í boltann og fær tvo eyjamenn í sig, fær svo brotið
67. mín
Allt brjálað á vellinum, búið að dæma hornspyrnu en Brynjar hélt að hann ætti markspyrnu og sparkar boltanum í Gary
66. mín
Eyjamenn fá aðra hornspyrnu
66. mín
Eyjamenn fá hornspyrnu eftir fyrirgjöf sem er hreinsuð í horn
65. mín
Eftir hornspyrnu Víkinga og mikið klafs í teignum og tvær frábærar markvörslur frá Halldóri Pál, bjargar eyjamönnum algjörlega þarna
64. mín
Frábær markvarsla frá Halldóri Pál eftir langa spyrnu frá Brynjari, heimsklassa markvarsla
61. mín
Ekkert skapast úr henni
60. mín
Eyjamenn fá hornspyrnu eftir að fyrirgjöf Felix er skölluð í horn
59. mín
Eftir mikið klafs í kringum teig eyjamanna ná Víkingar loksins skoti, en aftur fer það ekki á markið
56. mín
Gonzalo kemur með skot eftir langan bolta frá Brynjari en spyrnan framhjá
55. mín
Þessi hornspyrna fer beint útaf
55. mín
Víkingar fá hornspyrnu
54. mín
Vitor kemur með skot en hann rennur í spyrnunni og endar boltinn beint á Halldóri
51. mín
Ekkert kemur úr þeirri sókn og fá Víkingar innkast á eigin vallarhelming
50. mín
Víkingur fær hornspyrnu sem misheppnast og eru eyjamenn í skyndisókn
ÍBV
49. mín
MAAAARK!

Gary John Martin (stoðsending: Guðjón Ernir Hrafnkelsson)

Eyjamenn skora fyrsta mark þessa leiks, eftir snögga skiptingu er Guðjón kominn einn inn á teig Víkings, hann rennir boltanum yfir á Gary Martin sem leggur boltann framhjá Brynjari
46. mín
Eyjamenn tæpur, það kemur langur bolti að vörn eyjamanna og reynir Sigurður að fleyta honum til baka á Halldór, komast Víkingar næstum í boltan á undan en Halldór tilbúinn
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn, Víkingar byrja neð boltann og eru með vindinn í bakið, erfiðar 45 min framundan fyrir eyjamenn
45. mín
Víkingar geta verið sáttir með sitt, búnir að gera vel á móti vindi gegn eyjamönnum
44. mín
Sá sem lá er Kristófer, hann er samt staðinn upp og labbar eftir línunni með Antonio sjúkraþjálfara
43. mín
Einn úr Víkingsliðinu liggur eftir í teignum og eru sjúkraþjálfarar að hjálpa
43. mín
Þessi hornspyrna há og auðveld fyrir Brynjar í markinu
42. mín
Eyjamenn fá aðra hornspyrnu
40. mín
Billy kemur með fyrirgjöf sem kemur eyjamönnum í smá vesen en á endanum fer boltinn í markspyrnu eyjamanna
39. mín
Aftur leita eyjamenn á nærsvæðið og aftur hreinsa Víkingar
39. mín
Víðir lyftir boltanum inn á teiginn og skalla Víkingar í horn
38. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Víkings
35. mín
Gonzalo nær skoti eftir góða sókn Víkings en aftur er skotið beint á Halldór
31. mín
Eyjamenn koma með tilraun af æfingasvæðinu en illa framkvæmt og hreinsa Víkingar
Víkingur Ó.
30. mín
Gult spjald

Michael Newberry

Guðjón keyrir upp kantinn og kemur með fyrirgjöf og fer Michael í misheppnaða tæklingu
29. mín
Víkingur nálægt því að skora, koma með fasta fyrirgjöf sem fer í gegnum teigin og ná þeir skotinu en Halldór Páll vel staðsettur og nær þessum bolta
28. mín
Harley kemur með skot fyrir Víking en það er þéttingsfast beint á Halldór
25. mín
Frábær tilþrif hjá Felix, heldur á lofti yfir bakvörð Víkings og kemur með fasta fyrirgjöf sem Brynjar nær að taka áður en að eyjamaður kemst í boltann
22. mín
Víðir með skot úr erfiðu færi eftir innkast eyjamanna sem Brynjar á auðvelt með
20. mín
Eyjamenn eiga hér hornspyrnu, kemur beint á nærsvæðið en Jón skallar hátt yfir
18. mín
Dauðafæri eyjamanna, krossinn kemur inn af kantinum á Gary sem stýrir boltanum rétt yfir slánna
17. mín
Fyrsta skot Víkings komið, Billy kemur inn og skítur en skotið laust og beint á Halldór
16. mín
Guðjón með skemmtileg tilþrif, rekur boltann in af kantinum og er kominn fyrir miðjan teig en skotið vel framhjá
14. mín
Þessu hornspyrna fór yfir allan pakkan og beint í markspyrnu
14. mín
Víkingar virkilega heppnir þarna, slæm sending aftur á Brynjar sem Telmo nær að stela, Brynjar nær að tækla boltann aftur af Telmo og í horn
9. mín
Eyjamenn fá hornspyrnu en engin hætta skapast
9. mín
Sito tekur þessa aukaspyrnu og kemur með neglu á nærhornið sem Brynjar ver vel
8. mín
Brotið á Víði rétt fyrir utan teig Víkings
5. mín
Eyjamenn byrja leikinn betur og eru duglegir að pressa á Víking sem eiga í erfiðleikum með að komast á vallarhelming eyjamanna í byrjun þessa leiks
3. mín
Dæmt mark af eyjamönnum, eftir að Víðir er fyrir utan teig Víkings skoppar boltinn inn á Gary sem að leggur hann fram hjá Brynjari að Sito sem er því miður rangstæður
Fyrir leik
Eyjamenn byrja með knöttinn og sækja í vestur, með vindinn í bakið
Fyrir leik
Samkvæmt veðurspá er 13 m/s og hitinn er 9.1 Allt sem stefnir í rosa leik hér á Hásteinsvelli
Fyrir leik
Eyjamenn sitja í 4. sæti Lengjudeildarinnar, og geta náð Þórsurum í efsta sætinu með sigri. Víkingur Ólafsvík situr hins vegar í 7. sæti deilarinnar en ef þeir sigra hér í dag munu þeir vera með 6 stig eins og eyjamenn.
Fyrir leik
Keflavík fór illa með Víking Ólafsvík í síðustu umferð og sigruðu þá 4-0. Munu þeir gera allt í sínu valdi til að koma sterkir inn í þessari umferð og sýna að þeir eigi heima meðal topp liðanna í þessari deild.
Fyrir leik
Í síðustu umferð lögðu eyjamenn Aftureldingu 2-1 með mörkum frá Víði Þorvarðasyni og Telmo Castanheira.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin að leik ÍBV og Víkings Ólafsvík þann 7.3.2020 á Hásteinsvelli
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.