Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Keflavík
Keflavík
Lengjudeild karla
Nettóvöllurinn
Suðvestan 9 metrar á sekúndu sól og um 12 gráðu hiti. Völlurinn fallegur að vanda
1 - 2
Leiknir R.
Leiknir R.
Dagur Austmann Hilmarsson (sjm) 35'1 - 01 - 155' Máni Austmann Hilmarsson1 - 260' Daníel Finns Matthíasson
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Myndir: Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Það eru Leiknismenn sem fara með stiginn þrjú héðan af Nettó-vellinum og það verðskuldað!
94. mín
Sævar klókur og sækir aukaspyrnu á Nacho. Tekur sekúndur af klukkunni.
93. mín
Tíminn að renna út fyrir heimamenn sem reyna hvað þeir geta.
92. mín
Önnur geggjuð varsla hjá Guy, Slær skalla í horn sem var á leið í netið.
Leiknir R.
91. mín
Gult spjald

Sólon Breki Leifsson

Rígheldur í Nacho.
Leiknir R.
90. mín
InnDaði Bærings Halldórsson
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
Keflavík
89. mín
Gult spjald

Josep Arthur Gibbs

Brýtur af sér og tuðar helst til mikið að smekk Einars.
86. mín
Ari Steinn með fínt skot úr erfiðri stöðu en boltinn beint á Guy
85. mín
Sólon ekki lengi að koma sér í fína stöðu og á skot en Sindri ver. Nacho hreinsar svo.
Leiknir R.
84. mín
InnSólon Breki Leifsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
83. mín
Joey Gibbs fer niður í teignum og sannfærður um að hann eigi að fá víti. Einar er ekki sammála áfram með leikinn.
Keflavík
81. mín
Gult spjald

Helgi Þór Jónsson

Helgi að sleppa í gegn en Máni Austmann kemst fyrir og Helgi tekur hann niður og uppsker gult.
79. mín
Þvííkar vörslur!!!!! Þreföld hvorki meira né minna. Eftir mikin darraðadans í teignum ná Keflvíkingar þremur skotum að marki Leiknis af stuttu færi..... Guy Smit eins og köttur á línunni og ver stórkostlega í þrígang.
79. mín
Keflavík fær hornspyrnu.
76. mín
Það verður eitthvað um uppbótartíma hér í lokinn. Leiknismenn hafa fengið að finna fyrir því og þurft nokkrum sinnum á aðhlynningu að halda. Spjalda þessar dúkkur heyrist úr stúkunni. Menn hafa skoðanir hér í Keflavík og alls ekki sáttir við gang mála.
Keflavík
75. mín
InnIngimundur Aron Guðnason
ÚtAdam Ægir Pálsson
Keflavík
75. mín
InnAri Steinn Guðmundsson
ÚtAdam Árni Róbertsson
Keflavík
75. mín
InnÓlafur Guðmundsson
ÚtAndri Fannar Freysson
74. mín
Sá ekki hvað gerðist þarna en Leiknismaður liggur á vellinum eftir skyndisókn.
72. mín
Rúnar Þór með ágætis skottilraun en boltinn fer yfir.
70. mín
Fyrir áhugasama er leikur Vals og ÍA í Pepsi Max deildinni í gangi nuna en hann hófst klukkan 20. Um 40 mínútur eru liðnar og staðan er 0-3 fyrir gestinna af Skipaskaga.
Keflavík
69. mín
Gult spjald

Sindri Þór Guðmundsson

68. mín
Sá ætlaði að klína honum. Daníel Finns með skot af vítateigslínunni en hátt yfir markið.
Leiknir R.
67. mín
InnDaði Bærings Halldórsson
ÚtDagur Austmann Hilmarsson
Keflavík
66. mín
InnHelgi Þór Jónsson
ÚtDagur Ingi Valsson
64. mín
Gestirnir úr nafla alheimsins Breiðholtinu hafa stjórnað leiknum frá a til ö hér í síðari hálfleik og forysta þeira fyllilega verðuskulduð.
62. mín
Keflavík fær horn.
Leiknir R.
60. mín
MAAAARK!

Daníel Finns Matthíasson (stoðsending: Sævar Atli Magnússon )

Maaaark!!!! Sævar Atli fær boltann í fætur með bakið í markið, leggur botlann í hlaupið hjá Daníel sem lætur vaða af 25 metrum og boltinn syngur í samskeytunum. Sindri átti aldrei möguleika í markinu! Þvílíkt skot!
Leiknir R.
58. mín
Gult spjald

Ósvald Jarl Traustason

56. mín
Vuk leikur sér að Rúnari í vörn Keflavíkur og á fyrirgjöf sem Keflavík skallar frá.
Leiknir R.
55. mín
MAAAARK!

Máni Austmann Hilmarsson

Maaark!!!!! Ætla kalla þetta verðskuldað!. Máni fær sendingu inn fyrir vinstra meginn á vellinum og klárar afskaplega smekklega yfir Sindra í markinu.
53. mín
Eysteinn AD 1 er í tómu bulli hér í dag. Fyrst galin rangstaða á Leikni og mark tekið af þeim. Nú augljós hornspyrna fyrir Keflavík en niðurstaðan markspyrna.
50. mín
Daníel Finns með skot úr aukaspyrnunni en beint á Sindra.
Keflavík
49. mín
Gult spjald

Anton Freyr Hauks Guðlaugsson

Hugsar bara um að taka Vuk niður og uppsker réttilega gult.
48. mín
Adam Árni með frábæra móttöku , kassar boltann niður og nær skoti en framhjá fer boltinn.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn Heimamenn byrja með knöttinn.
45. mín
Held að twitter frá Kristjáni Óla tali sínu máli. Leiknir hreinlega rændir marki.
Leiknir R.
45. mín
InnÓsvald Jarl Traustason
ÚtBjarki Aðalsteinsson
45. mín
Það er kominn hálfleikur hér í Keflavík. Keflavík leiðir í leikhléi eftir mark úr föstu leikatriði. Leiknismenn þó síst lakari aðilinn í leiknum. Verður spennandi að fylgjast með síðari hálfleiknum.
44. mín
Gibbs liggur á vellinum eftir samstuð. Var dæmdur brotlegur en hefur farið verr út úr því sjálfur.
42. mín
Illa farið með frábæra stöðu! Dagur Ingi kemst inn á teiginn hægra meginn og á skot/fyrirgjöf sem siglir framhjá. Gibbs var gapandi frír í teignum.
41. mín
Snörp sókn Kelfavíkur endar með fyrirgjöf í hendur Smits. Adam ægir hafði þó farið niður í teignum áður og beðið um eitthvað en Einar lét sér fátt um finnast.
40. mín
Máni Austmann með skot rétt framhjá eftir snarpa sókn.
36. mín
Sindri Kristinn með flotta vörslu og ver boltann í horn.
Keflavík
35. mín
MAAAARK!

Dagur Austmann Hilmarsson (sjm)

Mark! Sá ekki betur en Nacho hafi skallað þennan í netið eftir hornspyrnu. Gæti hafa verið sjálfsmark þó.
30. mín
Máni Austmann veldur usla í vörn Keflavíkur sem hreinsa fyrirgjöf hans á síðustu stundu.
29. mín
Joey Gibbs í færi eftir góðan undirbúning Rúnars en skot hans laust og Smit hirðir boltann.
27. mín
Í þeim rituðu orðum Leiknismenn skalla ágæta fyrirgjöf Sindra Þórs í horn. Fá annað horn í kjölfarið.
26. mín
Boltinn hreinsaður í bakið á Sævari Atla og þaðan í fang Sindra. Lítið um opin færi.
21. mín
Leiknismenn skora!!! Eftir snarpa sókn sýnist mér það vera Sævar Atli sem kemur boltanum í netið en flaggið fer á loft svp það stendur ekki. Sindri hefur fengið högg við að freista þess að verja og fær aðhlynningu en stendur fljótt upp og heldur leik áfram.
Keflavík
17. mín
Gult spjald

Adam Ægir Pálsson

Heimskulegt spjald. Sparkar boltanum í burtu eftir brot. Einar ekki með húmor fyrir því.
17. mín
Vuk keyrir inn á teiginn og rennir boltanum fyrir en Nacho kemst fyrir og Sindri hirðið boltann.
16. mín
Heimamenn að hressast og ná smá pressu á gestina en ekki náð að skapa sér færi.
11. mín
Sævar Atli kemst í gegn um vörn Keflavíkur eftir snarpa sókn en setur boltann yfir.
10. mín
Keflavík fær horn. Boltanum komið frá en Leiknismaður liggur í teignum. Stendur þó upp og heldur leik áfram.
9. mín
Sindri Þór á harða spretti upp hægri vænginn en brotið á honum. Aukaspyrna á góðum stað fyrir fyrirgjöf.
6. mín
Slök hreinsun dettur beint fyrir fætur Vuk í teig Keflavíkur en hann nær ekki að leggja boltann fyrir sig og færið rennur út í sandinn.
6. mín
Leiknir fær horn.
5. mín
Keflvíkingar í skyndisókn. Adam Ægir með boltann vinstra meginn og leggur hann á Joey Gibbs en skot hans arfaslakt á beint á Smit í markinu.
3. mín
Þetta fer rólega af stað. Leiknismenn haldið boltanum hér í upphafi og þreifað sig áfram.
1. mín
Þetta er farið af stað hér í Keflavík Það eru gestirnir sem hefja leik.
Fyrir leik
Ólafur Guðmundsson miðjurmaður úr Breiðablik sem gekk til liðs við Keflavík á lánssamning nú á dögnum er á bekk Keflavíkur í dag. Vuk Oskar Dimitrijevic er að sjálfsögðu í liði Leiknis og fagna ég því að fá tækifæri til að sjá hann spila. Eðalleikmaður þar á ferð sem ég er viss um að við eigum eftir að sjá mikið af á næstu árum. En hann er á leið til FH að tímabilinu loknu.
Fyrir leik
Sólin skín hér á Nettóvöllinn og leikmenn að hita upp. Allt til alls til þess að við fáum flottan leik hér í dag.
Fyrir leik
Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis á góðar minningar héðan úr Keflavík en hans fyrsti leikur eftir að hafa tekið við sem aðalþjálfari Leiknis var á Nettó-vellinum gegn Keflavík þar sem Leiknir vann 1-3 sigur.
Fyrir leik
Heimamenn úr Keflavík hafa komið fljúgandi úr blokkunum þetta sumarið og hafið mótið af gríðarlegum krafti. Tveir sigrar í tveimur leikjum og markatalan 9-1 myndi teljast ágætt á flestum bæjum. Keflavík hóf mótið á 5-1 sigri á Aftureldingu á Nettó-vellinum. Í annari umferð héldur Keflvíkingar vestur á Snæfellsnes og mættu þar Víkingum frá Ólafsvík. Lokatölur þar urðu 0-4 Keflavík í vil en kunnir menn segja þó að úrslit leiksins hafi ekki endurspeglað hvernig leikurinn þróaðist en Keflavík skoraði 3 af 4 mörkum sínum eftir 80.mínútu. Mögulega hefur þreyta hjá Ólsurum haft eitthvað með það að gera en þeir fóru í gegnum 120 mínútur + vítaspyrnukeppni gegn nöfnum sínum úr Reykjavík 4 dögum fyrr.
Fyrir leik
Gestirnir úr Breiðholti hafa farið ágætlega af stað í Lengjudeildinni og sitja í 5.sæti með 4 stig eftir tvær umferðir. Leiknir gerði góða ferð á Eimskipsvöllinn í fyrstu umferð og lagði Þrótt að velli 1-3. í annari umferð komu Vestramenn á heimsókn á Domus-Nova völlinn. Leikurinn sá endaði með markalausu jafntefli eftir rigningarleik þar sem gul spjöld voru í aðalhlutverki.
Fyrir leik
Gott kvöld lesendur góðir og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Leiknis sem fram fer á Nettó-vellinum í Keflavík
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.