Leik lokið!
Verðskuldaður sigur gestanna. Þeir voru tilbúnari í verkefnið og fyrirliði liðsins, Arkadiusz Jan Grzelak skoraði tvívegis til að tryggja það að þeir rauðklæddu færu með stigin þrjú heim til Fáskrúðsfjarðar!
93. mín
Gult spjald
Alexander Ívan Bjarnason
92. mín
Það er allt útlit fyrir að Leiknismenn séu að koma sér á blað og það verðskuldað. Magnamenn hafa verið flatir í kvöld.
91. mín
Kairo gerir frábærlega í að spóla sig upp kantinn, þrátt fyrir að Arkadiusz væri hangandi í honum hálfa leið. Hann á svo góða stungusendingu á Kristinn Þór, sem er hálfu skrefi á eftir El-Hage í boltann.
90. mín
Magnamenn fá hornspyrnu. Ef eitthvað á að gerast, þarf það að erast núna. Það gerðist ekki, framkvæmd hornspyrnunnar var afleit.
89. mín
Kifah Moussa Mourad gerir vel í að koma boltanum fyrir á Sæþór. Skalli Sæþórs er framhjá.
87. mín
Kairo og Frosti eiga ágætis samspil sem endar með lausu skoti frá Kairo, beint á El-Hage.
84. mín
Uppspil Magna gengur afar brösuglega þar sem að þeir eru staðráðnir í að gera það sem fáum hefur tekist - að skora tvö mörk í einni sókn.
82. mín
Frosti á fyrirgjöf á hægri kantinum sem endar í utanverðri stönginni!
80. mín
Marteinn Már sleppur inn fyrir, en setur boltann framhjá! Þetta hefði verið síðasti naglinn í kistu Magnamanna.
78. mín
InnKifah Moussa Mourad
ÚtDaniel Garcia Blanco
78. mín
InnBjörgvin Stefán Pétursson
ÚtStefán Ómar Magnússon
77. mín
Frosti hefur komið nokkuð ferskur inní þennan leik og gerir vel í að taka tvo Leiknismenn á og þrumar í hliðarnetið.
75. mín
Korter eftir og ekki margt sem bendir til þess að Magnaliðið nái að koma til baka. Ótrulegri hlutir hafa þó skeð.
74. mín
Gult spjald
Daniel Garcia Blanco
Dregur Helga Snæ niður á miðjunni.73. mín
Það er ákveðið rannsóknarefni að Stefán Ómar sé ekki kominn með gult spjald. Hann nálgast tuginn í fjölda brota.
72. mín
InnFreyþór Hrafn Harðarson
ÚtViktor Már Heiðarsson
72. mín
InnOddgeir Logi Gíslason
ÚtTómas Örn Arnarson
71. mín
Gult spjald
Helgi Snær Agnarsson
Fær gult spjald fyrir dýfu innan teigs!68. mín
Gult spjald
Tómas Örn Arnarson
Tekur Sæþór niður! Hann var með löppina nokkuð hátt á lofti en fór í boltann og það sennilega bjargar honum. Leiknismenn kröfðust þess að sjá rautt spjald, en Elías gefur Tómasi gult.65. mín
InnMarteinn Már Sverrisson
ÚtKristófer Páll Viðarsson
65. mín
InnJakob Hafsteinsson
ÚtLouis Aaron Wardle
64. mín
Vel varið hjá Danny El-Hage! Frosti og Helgi spila vel saman áður en Frosti leggur hann útí teiginn á Kristinn Þór. Hann á þéttingsfast skot sem er of nálægt El-Hage og hann fer í horn! Tómas Örn á svo skalla yfir markið eftir hornið.
62. mín
InnSæþór Ívan Viðarsson
ÚtMykolas Krasnovskis
61. mín
Tæpur hálftími eftir af venjulegum leiktíma og Magnamenn eiga ærið verkefni fyrir höndum. Leiknisliðið er að spila vel og vilja þriðja markið sem myndi gera út um þennan leik.
59. mín
Gult spjald
Almar Daði Jónsson
Eitthvað vesen milli Almars og Kristins.59. mín
Gult spjald
Kristinn Þór Rósbergsson
58. mín
MAAAARK!
Arkadiusz Jan Grzelak (stoðsending: Jesus Suarez Guerrero)
FYRIRLIÐINN ER BÚINN AÐ SETJA ANNAÐ!!! Magnamönnum gengur bölvanlega að koma boltanum burt eftir hornspyrnu og skalla hann út í teiginn. Jesus Guerrero tekur boltann á lofti og setur hann á fjær, þar er Arkadiusz aleinn og setur boltann í fjærhornið! 0-2!57. mín
Kristófer á snyrtilega utanfótar sendingu inn fyrir á Daniel Garcia Blanco sem vinnur hornspyrnu.
55. mín
Sveinn Þór hyggst blása til sóknar og gerir tvöfalda skiptingu.
54. mín
InnFrosti Brynjólfsson
ÚtBaldvin Ólafsson
54. mín
InnKairo Asa Jacob Edwards-John
ÚtCostelus Lautaru
54. mín
Kristófer er kominn á fætur og virðist klár í að halda áfram.
53. mín
Povilas á flottan bolta fyrir á Mykolas en Gauti er á undan í boltann! Kristófer Páll liggur eftir á vellinum og þarfnast aðhlynningar.
51. mín
Kristófer Páll kemst á fljúgandi siglingu inní teig Magna en Gauti stígur hann út. Kristófer leitast eftir vítinu, en Elías hefur engan áhuga á því.
48. mín
Helgi Snær gerir vel í að leika inn völlinn og kemst í skotfæri rétt fyrir utan vítateig Leiknis. Skotið er hinsvegar ekki gott og beint á El-Hage í markinu.
46. mín
Leiknismenn fá aukaspyrnu eftir 10 sekúndur. Aðeins of langt frá fyrir skot, en þeir fjölmenna inní teig og Mykolas skallar töluvert langt framhjá, eftir aukaspyrnu Kristófers.
46. mín
Þá förum við af stað á ný!
45. mín
Leiknismenn eru verðskuldað yfir í hálfleik. Ég er ekki handviss um að Gauti hafi brotið á Kristóferi, en aðdragandinn að vítaspyrnudóminum var svo klaufalegur hjá Magnaliðinu.
Magnamenn þurfa að leggja höfuðið í bleyti í hálfleik og hafa sólina í bakið í seinni hálfleik. Það gæti haft sitt að segja, hún er blindandi hreinlega. Baldur Sigurðsson væri ekki ánægður með hana.
44. mín
Gauti Gautason sendir Elíasi Inga pillu og fær smá tiltal fyrir. Elías hefur verið með flautukonsert og lítið flæði fengist í leikinn.
42. mín
Kristófer Páll í dauðafæri! Hann gerir mjög vel í að skilja Tómas eftir á rassinum, en Steinþór Már ver frábærlega frá honum, einn á einn!
38. mín
Nú biður Baldvin Ólafsson um aðstoð. Baldvin hefur verið líflegur á miðjunni og það væri slæmt fyrir heimamenn að missa reynsluboltann útaf.
38. mín
Unnar reynir að ná Cristiano Ronaldo flökti á boltann, en hann fer beint í fangið á Steinþóri.
36. mín
Gult spjald
Viktor Már Heiðarsson
Aftur verð ég að vera ósammála dómara leiksins. Kristófer Páll reynir að taka Viktor á sem virðist hreinlega taka boltann, en aukaspyrna er dæmd og spjald að auki. Á góðum stað fyrir gestina. Unnar Ari stendur yfir boltanum.35. mín
Viktor Már fær boltann úti hægra megin og setur boltann inní teig, þar rís Hjörvar hæst og skallar boltann framhjá markinu. Leikmenn Magna hafa aðeins sótt í sig veðrið síðustu mínútur.
33. mín
Louis á ágætt skot rétt fyrir utan teig á nærstöngina en Danny El-Hage á í litlum vandræðum með það.
31. mín
Magnamenn fara illa með góða stöðu! Costelus leggur hann á Kristinn Þór sem var í einn á einn stöðu og leggur hann til hliðar á Louis, sem er alltof lengi að athafna sig og Leiknismenn koma honum í horn.
30. mín
Gult spjald
Mykolas Krasnovskis
Frekar soft spjald. Verður að viðurkennast.25. mín
Arkadiusz er kominn inná á nýjan leik.
24. mín
Garcia Blanco í dauðafæri! Kristófer á geggjaða fyrirgjöf á fjærstöngina og Blanco skallar að marki en Steinþór ver í horn!
Í horninu fær Mykolas frían skalla en hann er laflaus og beint í fangið á Steinþóri.
23. mín
Arkadiusz liggur eftir. Það væru vondar fréttir fyrir Leiknismenn ef að þeir misstu fyrirliðann útaf, draghaltur í augnablikinu.
21. mín
Glæsilega varið hjá Danny El-Hage! Costelus á flotta hælsendingu á Baldvin sem að nær fínu skoti í fjærhornið en El-Hage sér við honum.
20. mín
Mykolas skallar í hliðarnetið! Stefán Ómar á virkilega góða fyrirgjöf frá hægri kantinum, beint á pönnuna á Mykolas en hann skallar rétt framhjá markinu.
18. mín
Daniel Garcia Blanco er heppinn að sleppa með gult spjald þegar hann tekur Gauta Gautason niður. Hann var alltof seinn.
15. mín
MAAAARK!
Arkadiusz Jan Grzelak
LEIKNISMENN ERU KOMNIR YFIR!!! Arek er afar öruggur á punktinum og sendir Steinþór í vitlaust horn. Verðskulduð forysta þeirra rauðklæddu. 0-1!14. mín
LEIKNIR F. FÁ VÍTI!! Kristófer er tekinn niður af Gauta Gautasyni, að mati Elíasar. Þetta hófst allt á afar klaufalegu uppspili úr vörn Magna!
13. mín
Baldvin Ólafsson á skot langt utan af velli í varnarmann sem að Danny El-Hage lendir í örlitlum vandræðum með, en forðast að lokum eitthvað vandræðalegt.
11. mín
Leiknismenn eru sprækari hér á upphafsmínútunum og hafa nú þegar komið boltanum í netið. Povilas, Kristófer og Mykolas hafa komist mikið í boltann og náð upp ágætu spili.
8. mín
Stefán Ómar leggur hann út á Povilas, sem fær boltann í ágætis skotfæri en hittir hann illa og setur hann yfir.
7. mín
MARK DÆMT AF LEIKNI!!! Kristófer á frábæra fyrirgjöf á Daniel Garcia, hann skallar að marki og Steinþór ver hann fyrir fætur Stefáns Ómars. Hann setur boltann í netið en markið er dæmt af vegna rangstæðu!
6. mín
Magnamenn reyna ítrekað að finna Costelus Lautaru upp kantana.
4. mín
Sólin er ofboðslega sterk og gæti leikið leikmenn grátt í dag!
2. mín
Almar Daði á slaka sendingu til baka og Costelus Lautaro kemst í milli, hann er þó stiginn út og ekkert verður úr þessu.
1. mín
Kristinn Þór Rósbergsson kemur leiknum af stað!
Fyrir leik
Tvær mínútur í leik og slagarinn "Magnaður Magnadans" ómar um völlinn.
Fyrir leik
Viktor Már Heiðarsson og Gauti Gautason koma inn í lið Magna í stað Frosta Brynjólfssonar og Kairo Edwards-John.
Hjá Leikni F. kemur Kristófer Páll beint inn í byrjunarliðið, ásamt Stefáni Ómari Magnússyni en Björgvin Stefán Pétursson og Salko Jazvin fá sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
Liðin mættust snemma á undirbúningstímabilinu í Kjarnafæðismótinu og þar hafði Leiknir F. 5-3 sigur í miklum markaleik. Fólk á pöllunum hefði gaman af því að sjá aðra eins veislu í kvöld.
Fyrir leik
Leiknir F. fengu góðan liðsstyrk á dögunum en Kristófer Páll Viðarsson kom á láni frá Keflavík. Kristófer er uppalinn í Leikni og hefur skorað 32 mörk fyrir félagið.
Kristófer skoraði meðal annars fernu í ótrúlegu 2-7 sigri á HK, í lokaumferð 1. deildar árið 2016.
Leiknismenn héldu sér þá uppi á markatölu og sendu Huginsmenn niður.
Þjálfari Hugins þá er núverandi þjálfari Leiknis, Brynjar Skúlason.
Fyrir leik
Magnamenn hafa ekki upplifað þá sælu sem fylgir því að fagna sigri síðan 4. janúar, þegar liðið vann 3-2 sigur á KA 2 í Kjarnafæðismótinu. Kjarnafæðismótið og Lengjubikarinn gekk afar illa hjá þeim röndóttu og þeir féllu út gegn HK í Mjólkurbikarnum í fyrstu umferðinni sem þeir voru gjaldgengir í.
Auðvitað hafa æfingaleikir ekki alltaf mikið að segja, en Sveinn Þór Steingrímsson, þjálfari Magna, mun vilja kynnast sigurtilfinningunni fyrr en síðar.
Fyrir leik
Leikurinn er gífurlega mikilvægur fyrir bæði lið, en það er nokkuð ljóst að þau munu þurfa að hafa fyrir því að halda sér í næstefstu deild. Liðin eru stigalaus eftir fyrstu tvo leikina og sjá því gott færi á að koma sér á blað í kvöld. Magnamenn eru í 9. sæti, sæti ofar en andstæðingar sínir. Fyrir neðan þá eru svo Afturelding og Þróttur R.
Magnamenn töpuðu 2-0 í Eyjum fyrir sterku liði ÍBV og þurftu svo að sætta sig við svekkjandi 1-2 tap á heimavelli gegn Fram. Kairo Asa Jacob Edwards-John skoraði mark Magna í leiknum og um leið sitt fyrsta mark fyrir félagið.
Leiknir hafa einnig orðið Fram að bráð, en þeir fengu 3-0 skell í Safamýrinni í fyrstu umferð. Þórsarar komu svo í heimsókn í Fjarðabyggðarhöllina og unnu Leiknismenn 2-3 í spennandi leik.
Það er því til mikils að vinna hér í kvöld og vonandi fáum við skemmtilegan lek!
Fyrir leik
Góða kvöldið! Hér fer fram textalýsing á leik Magna og Leiknis frá Fáskrúðsfirði í Lengjudeild karla.



