Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Víkingsvöllur
9 gráður, skýjað og smá gola
Víkingur R.
Víkingur R.
1 - 5
Valur
Valur
Óttar Magnús Karlsson 4'1 - 01 - 18' Valgeir Lunddal Friðriksson1 - 212' Patrick Pedersen1 - 342' Valgeir Lunddal Friðriksson1 - 457' Patrick Pedersen1 - 578' Aron Bjarnason
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Valsmenn skoruðu 5 í Vikinni

Hvað réði úrslitum?

Eftir að Óttar Magnús kemur Víkingum yfir þá kveiknaði á Valsvélinni og keyrðu þeir yfir Víkinga, voru heilt yfir betri í 80 minútur þrátt fyrir að Vikingar hafi heldur betur fengið færi til að skora fleiri en Hannes Þór varði mark Valsmanna vel

Bestu leikmenn

1. Patrick Pedersen (Valur)

Patrick Pedersen skoraði 2. mörk i kvöld og var virkilega flottur upp í topp Valsmanna og leiddi sóknarleik Vals vel i kvöld

2. Hannes Þór Halldórsson (Valur)

Hannes Þór Halldórsson átti nokkrar lykilvörslur í þessum leik. Sérstaklega eftir að Valsmenn jafna þá keyra Víkingar upp og Águst Eðvald fær úrvals færi til að koma Víkingum aftur yfir en Hannes kom í veg fyrir það

Atvikið

Fjórða mark Valsmanna sem kláraði leikinn endanlega. Kristinn Freyr komst í gegn og lagði boltan út á Pedersen sem kláraði yfirvegað framhjá Þórði

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn eru komnir aftur á sigurbraut eftir skellinn á móti Skagamönnum í siðustu umferð. Vikingar hinsvegar tapa öðrum leik sinum i röð.

Vondur dagur

Þórður Ingason (Víkingur R) - Fékk á sig fimm í kvöld og gerði að mínu mati stór mistök í þriðja marki Vals sem Valgeir skoraði þegar boltin lekur undir Þórð og svo i fimmta markinu þegar hann fer i skógarhlaup eftir langan bolta frá Lassy og missir af boltanum og Aron Bjarna setti boltann í autt marl

Dómarinn - 7.5

Fannst tríóið hafa góð tök á öllum leiknum í kvöld
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.