SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Gróttu staðreynd
Hvað réði úrslitum?
Það voru jafnræði með liðunum framan af en um leið og Grótta braut ísinn og skoraði fyrsta markið var þetta aldrei spurning. Sannfærandi sigur Gróttu á lánlausum Fjölnismönnum staðreynd.
Bestu leikmenn
1. Halldór Kristján Baldursson
Var virkilega öflugur í bakverðinum í dag. Skoraði og átti flottar tæklingar í vörninni og átti meðal annars eina geðveika slíka í fyrri hálfleik sem bjargaði því að Örvar kæmist einn innfyrir. Fær MOTM frá mér.
2. Karl Friðleifur Gunnarsson
Skoraði gott markið sem drap í Fjölni og fær plássið fyrir það en það hefði verið hægt að taka nokkra fyrir sem gerðu tilkall í MOTM umræðu.
Atvikið
Mark Karls Friðleifs Gunnarssonar slökkti alveg í Fjölni í kvöld.
Hvað þýða úrslitin?
Grótta sækir sinn fyrsta sigur í ár og lyftir sér úr fallsætinu og skilur Fjölnir eftir á botninum með 1 stig.
Vondur dagur
Fjölnisliðið var arfarslakt í dag og deila þeir þessum degi saman.
Dómarinn - 5
Tæpar ákvarðanir oft á tíðum og stundum rangar en það er ekki honum að kenna að leikurinn fór 3-0 fyrir Gróttu svo hann sleppur við fall.



