Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla
Grindavíkurvöllur
Hefðbundin Grindvísk gola, skýjað og hiti um 12 gráður
Grindavík
Grindavík
4 - 4
Keflavík
Keflavík
0 - 12' Josep Arthur GibbsSigurður Bjartur Hallsson 10'1 - 11 - 214' Davíð Snær Jóhannsson Sigurður Bjartur Hallsson 19'2 - 2Oddur Ingi Bjarnason 22'3 - 2Josip Zeba 25'4 - 24 - 338' Helgi Þór Jónsson 4 - 484' Josep Arthur Gibbs
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson

SKÝRSLAN: Varnarlaust i Grindavík

Hvað réði úrslitum?

Varnir liðanna slepptu því að mæta til leiks í fyrri hálfleik. 7 mörk á 45 mínútum er vel í lagt. Liðin löguðu þó varnarleikinn í síðari hálfleik en Keflvíkingar náðu að kreista fram jöfnunarmark og liðin þurftu þó að sættast á skiptan hlut.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Bjartur Hallsson

Ógnandi og skoraði tvö frábær mörk á sprellitímanum í fyrri hálfleik. Jákvætt fyrir Grindavík að hann skori upp á framhaldið að gera.

2. Davíð Snær Jóhannsson

Gerði vel í leiknum skoraði gott mark og var að finna svæði til að sækja í. Óheppinn að bæta ekki við öðru marki en átti heilt yfir fínan leik.

Atvikið

Fyrstu 25 mínútur leiksins voru áhugaverðar í meira lagi. 6 mörk litu dagsins ljós og skemmtunin taumlaus fyrir áhorfendur. Ekki viss um að varnarmenn liðanna hafi skemmt sér jafn vel.

Hvað þýða úrslitin?

Stigin gera voðalega lítið fyrir liðin í töflunni. Keflavík lyftir sér reyndar uppfyrir Leikni í 4.sætið á markatölu meðan Grindavík situr áfram í því 6. á færri skoruðum mörkum en Leiknir.

Vondur dagur

Varnarlínur liðanna fá þetta skuldlaust fyrir fyrri hálfleikinn. Vissulega hrikalega skemmtilegt á að horfa fyrir áhorfendur en þjálfarar beggja liða hafa eflaust ekki verið sáttir í hálfleik enda voru bæði lið varnarlaus því sem næst.

Dómarinn - 7

Heilt yfir bara solid hjá Guðmundi hafði fín tök á leiknum og leyfði honum að fljóta vel. Alveg eitt og eitt atriði sem má skoða en ekkert sem hafði áhrif á leikinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.