Fotbolti.net
Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Pepsi Max-deild karla
Norðurálsvöllurinn
Flottar aðstæður. Smá gola og 10 stiga hiti
ÍA
ÍA
2 - 2
HK
HK
Óttar Bjarni Guðmundsson 33'1 - 01 - 143' Atli ArnarsonTryggvi Hrafn Haraldsson 66'2 - 12 - 278' Atli Arnarson (víti)
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Enn og aftur gera ÍA og HK jafntefli

Hvað réði úrslitum?

Aðallega færaleysi. Skemmtilegur og fjörugur leikur en það var ekki mikið um færi. Liðin voru soltið mikið að komast í fínar stöður en svo klikkaði lokahnykkurinn.

Bestu leikmenn

1. Valgeir Valgeirsson(HK)

Valgeri var alveg frábær í þessum leik. Sýndi það enn og aftur að hann er ekki efnilegur lengur bara virkilega góður.

2. Óttar Bjarni Guðmundsson(ÍA)

Mark og stoðsending og líka öflugur varnarlega. Flottur í þessum leik.

Atvikið

Aðdragandinn að vítinu sem HK fékk. Gísli Laxdal kom sér einn gegn Sigurði í marki HK en skotið agalega slakt og HK brunaði beint í sókn og fékk víti. Mark frá Gísla hefði sennilega klárað leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin breyta litlu fyrir liðin. Fengu bæði einn punkt sem hjálpar þeim í baráttunni í sumar en eru eflaust bæði svekkt að hafa náð í þau öll í dag.

Vondur dagur

Sindri Snær leikmaður ÍA fær þetta. Sindri var keyptur frá ÍBV í fyrra til að fylla það skarð sem Arnar Már skildi eftir sig þegar hann meiddist en hann átti agalega slakan dag á miðjunni hjá ÍA.

Dómarinn - 7

Fínn leikur hjá Pétri og félögum. Náði að halda mönnum réttu megin við línuna þegar hitinn var sem mestur í mannskapnum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.