Fotbolti.net
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Pepsi-deild karla
KR-völlur
Flottar.
KR
KR
2 - 1
Fylkir
Fylkir
0 - 139' David ElebertÓskar Örn Hauksson 57'1 - 1Þorsteinn Már Ragnarsson 79'2 - 1
Dómari: Valgeir Valgeirsson
Áhorfendur: 1489
Fyrir leik
Kvöldið! Hér verður bein textalýsing frá leik KR og Fylkis í 10. umferð Pepsi-deildar karla.
Fyrir leik
KR er fyrir leikinn með 19 stig í öðru sæti deildarinnar og geta með sigri komist á toppinn þar sem FH spilar ekki í kvöld. Fylkir er hins vegar með 13 stig í sjöunda sætinu.
Fyrir leik
Nokkrar breytingar eru á báðum liðum frá því í síðasta leik enda stutt á milli leikja þessa dagana. Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR kemur aftur inn í liðið eftir meiðsli en Kjartan Henry Finnbogason er hins vegar ekki með vegna meiðsla. Dofri Snorrason og Atli Sigurjónsson koma einnig inn í liðið en Baldur Sigurðsson og Viktor Bjarki Arnarsson detta út.
Fyrir leik
Hjá Fylki koma Kristján Valdimarsson, Ingimundur Níels Óskarsson, Tómas Joð Þorsteinsson og Jóhann Þórhallsson inn í liðið fyrir Finn Ólafsson, Björgólf Takefusa, Magnús Þóri Matthíasson og Árna Frey Guðnason.
Fyrir leik
N1 mótið er í gangi á Akureyri og vöntun er á boltasækjurum. Hlynur Valsson bendir áhugasömum krökkum á að fara inn í félagsheimili KR til að sækja um stöðuna.
Fyrir leik
Björn Jónsson er ennþá að jafna sig af meiðslum en hann er þrátt fyrir það mættur í KR-treyjunni út á völl þar sem hann leikur sínar með boltann.
Fyrir leik
Innan við 1000 áhorfendur hafa mætt á síðustu tvo heimaleiki KR. Mætingin ætti hins vegar að verða betri í kvöld enda leiktíminn hentugri en í síðustu leikjum.
Fyrir leik
Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, kemur færandi hendi fyrir leik og afhentir sextugsafmælisgjöf. Kalli, sem sér um vallarklukkuna á KR-velli, á afmæli.
Fyrir leik
Mínútu þögn er fyrir leik til minningar um Þorsteinn Kristjánsson, Steina Klaka, sem lést á dögunum eftir langvarandi veikindi. Þorsteinn lék með KR á sínum tíma og var meðal annars í liði sem varð Íslandsmeistari með fullt hús stiga.
1. mín
Leikurinn er hafinn!
10. mín
Tíðindalítið fyrstu tíu mínúturnar hér í Vesturbæ.
14. mín
Fyrsta færi leiksins og það er Fylkismanna. Jóhann Þórhallsson fær fínt skallafæri eftir fyrirgjöf frá Ingimundi Níels en Hannes Þór Halldórsson ver.
20. mín
Grétar Sigfinnur Sigurðarson skoraði eftir hornspyrnu í síðasta leik KR og hann fær hér fínt færi til að endurtaka leikinn. Hornspyrnan kom á fjær þar sem Magnús Már Lúðvíksson skallaði fyrir á Grétar en skalli hans fór yfir markið.
25. mín
Davíð Þór Ásbjörnsson brýtur á Bjarna Guðjónssyni sem liggur eftir. KR-ingar vilja spjald en Valgeir Valgeirsson er alveg til í að leyfa smá hörku og hann geymir spjöldin. Rhys Weston miðvörður KR liggur einnig meiddur á vellinum og meiðsli hans virðast vera verri en hjá Bjarna.
27. mín
Bjarni Guðjónsson á flotta sendingu inn á Emil Atlason sem kemst í fínt færi en Bjarni Þórður Halldórsson sér við honum og ver í horn.
KR
29. mín
InnGunnar Þór Gunnarsson
ÚtRhys Weston
Rhys Weston fer af velli vegna meiðsla í læri.
30. mín
Þorsteinn Már Ragnarsson er dæmdur rangstæður og Páll Sævar Guðjónsson í KR-útvarpinu er allt annað en ánægður með þann dóm. Páll er einnig óánægður með hvernig línurnar eru í vellinum en hann myndi hátta slættinum öðruvísi. Páll lýsir leiknum í KR-útvarpinu í dag í fjarveru Bjarna Fel.
Fylkir
39. mín
MAAAARK!

David Elebert

Fylkismenn ná forystunni! Ingimundur Níels Óskarsson á aukaspyrnu nálægt endalínu hægra megin og hann sendir fínan bolta inn á teig þar sem írski miðvörðurinn David Elebert skorar með hörkuskalla.
41. mín
Elebert hefur verið eins og klettur í vörn Fylkis í undanförnum leikjum. Þrátt fyrir að margir haldi að hann sé eldri þá er þessi öflugi leikmaður 26 ára gamall.
45. mín
Fylkismenn nálægt því að skora aftur. Davíð Þór Ásbjörnsson á hörkuskot fyrir utan teig sem Hannes Þór slær í horn. Davíð er með magnaðan skotfót og hann hefur verið að valda usla með honum í sumar.
46. mín
Hálfleikur. Fylkismenn enduðu fyrri hálfleikinn af miklum krafti og náðu verðskuldað forystunni. KR-liðið virkar þreytt og meira bit vantar í sóknarleik þeirra. Spurning er hvort Íslands og bikarmeistararnir nái að mæta grimmari til leiks í síðari hálfleiknum.
KR
46. mín
InnBaldur Sigurðsson
ÚtDofri Snorrason
Síðari hálflekurinn er hafinn. Dofri var ekki að finna sig og Smalinn kemur inn. Baldur spilar framarlega á miðjunni og Emil tekur stöðu Dofra á kantinum.
51. mín
Óskar Örn Hauksson fær fyrsta færið í síðari hálfleiknum en hann þrumar boltanum framhjá markinu úr nokkuð þröngu færi.
54. mín
KR-ingar fá víti. Kristján Valdimarsson fer klaufalega aftan í Þorstein Má Ragnarsson. Kristján liggur meiddur eftir og kallað er á sjúkrabörur. Enginn Kjartan Henry í liði KR í dag og því spurning hver fer á punktinn.
KR
57. mín
MAAAARK!

Óskar Örn Hauksson

Óskar Örn fer á punktinn og skorar af öryggi!
Fylkir
58. mín
InnFinnur Ólafsson
ÚtKristján Valdimarsson
Kristján fer meiddur af velli og Finnur leysir hann af hólmi. Finnur fer á miðjuna og Davíð Þór Ásbjörnsson dettur niður í vörnina.
61. mín
Fylkismenn nálægt því að endurheimta forystuna. Eftir fína skyndisókn kemst Oddur Ingi Guðmundsson framhjá Gunnari Þór Gunnarssyni og á skot sem Grétar Sigfinnur Sigurðarson bjargar á línu. Einhverjir Fylkismenn vilja hendi á Grétar en Valgeir dæmir ekkert.
65. mín
Jóhann Þórhallsson á skot úr vítateigsboganum sem Hannes nær að verja.
67. mín
Óskar Örn á skalla úr dauðafæri en Bjarni Þórður slær boltann í horn.
KR
69. mín
InnViktor Bjarki Arnarsson
ÚtAtli Sigurjónsson
Síðasta skipting KR-inga....
Fylkir
74. mín
InnBjörgólfur Takefusa
ÚtOddur Ingi Guðmundsson
KR
79. mín
MAAAARK!

Þorsteinn Már Ragnarsson

Þorsteinn Már kemur KR-ingum yfir. Þorsteinn fékk langa sendingu inn á vítateiginn hægra megin. Þar fékk hann tíma til að athafna sig og skora með vinstri fótar skoti í fjærhornið. Frábærlega gert hjá Þorsteini sem hefur verið iðinn við kolann að undanförnu.
81. mín
1489 áhorfendur á vellinum í dag.
83. mín
KR-ingar nálægt því að bæta við þriðja markinu en bæði Baldur Sigurðsson og Emil Atlason missa af boltanum eftir fyrirgjöf frá hægri.
Fylkir
84. mín
Gult spjald

Bjarni Þórður Halldórsson

Valgeir hefur sparað spjöldin í dag og leyft mönnum að komast upp með tæklingar. Bjarni Þórður fer í bókina fyrir kjaft.
Fylkir
85. mín
InnMagnús Þórir Matthíasson
ÚtKjartan Ágúst Breiðdal
86. mín
Björgólfur Takefusa á flottan sprett og síðan skot sem fer í varnarmann og aftur fyrir endamörk.
90. mín
Fylkismenn sækja stíft í leit að jöfnunarmarki.
90. mín
Sex mínútum er bætt við venjulegan leiktíma. Meiðsli Kristjáns spila þar mikið inn í.
90. mín
Fylkismenn eru æfir út í Valgeir dómara! Bæði Björgólfur Takefusa og Magnús Þórir Matthíasson falla nálægt vítateigslínunni. Valgeir dómari dæmir ekki brot á KR heldur endar á því að flauta hendi á Matthías. Fylkismenn hefðu átt að fá meira fyrir sinn snúð þarna.
Fylkir
90. mín
Gult spjald

Tómas Joð Þorsteinsson

Tómas Joð tekur eina fullorðins tæklingu á Magga Lú út við hornfána.
Leik lokið!
Leik lokið með 2-1 sigri KR-inga. Seiglusigur hjá Vesturbæingum sem hafa oft leikið betur en í dag. Nánar verður fjallað um leikinn hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.