Fyrir leik
Sæl og velkomin í beina textalýsingu frá leik Selfoss og Stjörnunnar sem hefst á slaginu 19:15. Aðstæður eru eins og best verður á kosið og útlit fyrir fjörugan leik. Byrjunarliðin má sjá hér til hliðar.
Fyrir leik
Logi Ólafsson gerir nokkrar breytingar í byrjunarliði Selfoss sem mætti Keflavík um daginn. Endre Brenne kemur inn eftir bann og fer í hægri bakvörðinn. Agnar Bragi er í byrjunarliði í fyrsta skitpti í sumar og fer í miðvörðinn og Ólafur Karl Finsen og Cisse koma inn Tómas Leifsson og Joe Tillen.
Líkast til er þetta svona:
Ismet
Brenne - Agnar Bragi - Stefán Ragnar - Sandnes
Jón Daði - Babacar - Royrane - Ólafur Karl
Cisse - Viðar
Líkast til er þetta svona:
Ismet
Brenne - Agnar Bragi - Stefán Ragnar - Sandnes
Jón Daði - Babacar - Royrane - Ólafur Karl
Cisse - Viðar
Fyrir leik
Lið Stjörnunnar er óbreytt eftir 4-2 sigurleikinn gegn Fram.
Líklega er þessu stillt upp einhvernvegin svona:
Ingvar
Jóhann - Daníel - Baldvin - Hörður
Atli Jó - Halldór - Scholz
Ellert - Garðar - Chopart
Líklega er þessu stillt upp einhvernvegin svona:
Ingvar
Jóhann - Daníel - Baldvin - Hörður
Atli Jó - Halldór - Scholz
Ellert - Garðar - Chopart
Fyrir leik
Liðin mættust síðast í deild árið 2010. Fyrri leikurinn fór 2-2 á Selfossi og Stjörnumenn unnu seinni leikinn 3-2 í Garðabænum.
Fyrir leik
Leikurinn fer að hefjast en liðin eru að ganga út á völlinn. Silfurskeiðin er mætt með látum í stúkuna en minna sést enn sem komið er af Skjálfta.
1. mín
Leikurinn er hafinn og heimamenn byrja með boltann og sækja í átt að frjálsíþróttavelllinum.
2. mín
Stefán Ragnar liggur meiddur á vellinum og virðist hafa misstigið sig. Hann er borinn af velli og Sigurður Eyberg kemur inná hans stað.
5. mín
Endre Brenne er kominn í stöðu miðvarðar og Sigurður Eyberg fór í sína stöðu í hægri bakverði. Bæði lið eru nokkuð spræk hér í upphafi.
12. mín
Gult spjald
Halldór Orri Björnsson
14. mín
Rautt spjald
Endre Ove Brenne
Rautt á Endre Brenne fyrir bort á Atla Jó sem var að komast innfyrir vörnina. Virkar heldur hart spjald. Selfyssingar án beggja miðvarða sinna núna eftir 15 mínútna leik.18. mín
Róðurinn verður þungur hjá heimamönnum núna. Garðar Jó var í góðum séns á markteig en náði ekki að pota boltanum í átt að marki er hann kom fyrir markið.
21. mín
Kenny Chopart í dauðafæri eftir mistök hjá Babacar sem kominn er í miðvörðinn en skotið framhjá markinu.
23. mín
MAAAARK!
Joseph David Yoffe
Selfyssingar eru komnir yfir einum manni færri eftir góða sókn sem endaði á því að Sigurður Eyberg sendi boltann inn í teig á Viðar Örn sem var kominn einn í gegn og skoraði24. mín
Gult spjald
Moustoupha Cissé
Stór ákvörðun hjá dómara leiksins er hann gefur Cisse gult spjald fyrir dívu þegar hann var kominn einn í gegn og Selfyssingar eru mjög óhressir með þennan dóm.28. mín
Stjörnumenn eru nokkuð slegnir eftir markið og Jón Daði var rétt sloppinn einn í gegn en Ingvar var vel á verði og náði að hreinsa útaf.
34. mín
Fín stemming kominn í stúkuna þó áhorfendur mættu vera fleiri. Skjálftamenn eru mættir á svæðið og Silfurskeiðin er í góðu formi líka.
38. mín
Selfyssingar eru nokkuð ágengir upp við mark gestana. Jón Daði setti aukaspyrnu rétt fyrir utan beint í vegginn og Cisse og Viðar komust í góða sókn stuttu síðar sem fór forgörðum.
40. mín
MAAAARK!
Alexander Scholz
Stjörnumenn eru búnir að jafna og það gerði Alexander Scholz með hörku skoti fyrir utan vítateig óverjandi fyrir Ismet í markinu.45. mín
MAAAARK!
Ellert Hreinsson
Stjörnumenn eru komnir yfir með skallamarki Ellerts Hreinssonar sem fékk boltann inni á vítateig frá Alexander Scholz. Sterkur endasprettur hjá Stjörnumönnum sem náðu heldur betur að vakna síðustu fimm mínútur fyrri hálfleiks.45. mín
Hálfleikur á Selfossi eftir viðburðarríkan fyrri hálfleik.
47. mín
Seinni hálfleikur er hafinn og byrjar með stórsókn gestana.
51. mín
Stefán Ragnar fór á sjúkrahús eftir að hann meiddist en óttast er að hann hafi fótbrotnað. Vonum fyrir heimamenn að svo sé nú ekki.
54. mín
Viðar Örn í hörkufæri en hitti boltann illa og skaut framhjá.
65. mín
Ellert Hreinsson í góðu færi eftir góða sókn Stjörnumanna en Ismet varði vel. Bæði lið reyna að sækja og það verður a.m.k. eitt mark til viðbótar í þessum leik það er ljóst.
69. mín
InnSindri Rúnarsson
ÚtJoseph David Yoffe
Viðar af velli, búinn að hlaupa mikið í dag og standa fyrir sínu
70. mín
Stjörnumenn virðast ljónheppnir að hafa ekki fengið á sig víti er Ellert Hreinsson virtist fá boltann í hendina inni í teig eftir að Sigurður Eyberg sendi fyrir markið en einungis horspyrna dæmd. Úr henni fengu Selfyssingar dauðafæri sem þeir náði ekki að nýta.
71. mín
InnBjarki Páll Eysteinsson
ÚtAtli Jóhannsson
74. mín
Halldór Orri með frábært skot fyrir utan teig og Ismet með ekki verri markvörslu. Vel gert hjá báðum.
78. mín
InnJoe Tillen
ÚtÓlafur Karl Finsen
80. mín
Jón Daði komst einn í gegn en hikaði of lengi og skaut ekki á markið og labbaði með boltann útaf
81. mín
MAAAARK!
Kennie Chopart
Stjörnumenn gera út um þennan leik. Kenny Chopart fékk draumasendingu innfyrir frá Bjarka Pál og kom á blindu hliðina á varnarmanni og skoraði af öryggi.87. mín
InnDarri Steinn Konráðsson
ÚtEllert Hreinsson
89. mín
InnHilmar Þór Hilmarsson
ÚtKennie Chopart
92. mín
Ndiaye einn í gegn en skot hans fór í hliðarnetið.
93. mín
Leik lokið á Selfossi. Viðtöl og umfjöllun koma inn seinna í kvöld.



