Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Grindavíkur og Vals í 10. umferð Pepsi-deildar karla.
Fyrir leik
Grindvíkingar eru enn að leita af sínum fyrsta sigurleik og býst ég við að Guðjón Þórðarsson sé búinn að stappa í þá stálið fyrir þennan leik.
Meðan Valsmenn hafa verið bæði virkilega góðir og eiga það til að detta úr góða gírnum í skemmda gírinn.
Ég vona innilega að þetta verði fjörugur leikur og megi betra liðið vinna.
Meðan Valsmenn hafa verið bæði virkilega góðir og eiga það til að detta úr góða gírnum í skemmda gírinn.
Ég vona innilega að þetta verði fjörugur leikur og megi betra liðið vinna.
1. mín
Jæja þá er þetta hafið og heimamenn byrja með boltann.
9. mín
Heimamenn eru mun sprækari hér í byrjun leiks, gaman að sjá hvað það skilar þeim .
10. mín
Alexander Magnússon skallaði boltanum í slánna eftir hornspyrnu frá Scott Ramsay.
12. mín
MAAAARK!
Pape Mamadou Faye
Pape Faye var að skora eftir sendingu frá Matthíasi Erni Friðrikssyni.15. mín
Valsmenn voru að gera sig líklega en vörn heimamanna er sterk fyrir.
22. mín
Rúnar Már Sigurjónsson með fyrsta færi Valsmanna. Boltinn datt fyrir utan teig heimamanna eftir misheppnaða hreinsun Alexanders Magnússonar og þar var Rúnar Már með skot en boltinn fór framhjá.
27. mín
Gult spjald
Magnús Björgvinsson
Fyrir brot á Guðjóni Pétri Lýðssyni30. mín
Matthías Guðmundsson í dauðafæri einn á móti Óskari Péturssyni en Óskar lokaði markinu. Fallegt spil milli Ásgeirs Þórs Ingólfssonar og Guðjóni Pétri og svo vantaði bara að klára hjá Matthíasi en tókst ekki.
33. mín
Kolbeinn Kárason þurfti að fara af velli eftir högg á höfuðið en hann er búinn að láta plástra sig og kominn aftur inná.
35. mín
Atli Sveinn Þórarinsson með skalla rétt framhjá markinu eftir hornspyrnu.
38. mín
Ray Anthony Jónsson með hættulega fyrirgjöf en Atli Sveinn Þórarinsson nær að hreinsa boltann í hornspyrnu sem að Mikael Eklund skallaði boltann hátt yfir markið.
45. mín
InnAndri Fannar Stefánsson
ÚtBrynjar Kristmundsson
Brynjar fer útaf vegna meiðsla eftir að Mikael Eklund og Brynjar lentu saman eftir tæklingu.
45. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað rétt fyrir utan teig. Rúnar Már Sigurjónsson stillti sér upp og þrumaði knettinum í átt að marki en Óskar Pétursson var vakandi og varði vel í markinu. Gudmundur Ársæll Guðmundsson flautaði svo til leikhlés eftir spyrnuna.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafin og eru það Valsmenn sem að byrja með boltann.
55. mín
Guðmundur Ársæll Guðmundsson með skelfilega ákvörðun. Magnús Björgvinsson var sloppinn einn í gegn eftir hagnað en Guðmundur dómari leiksins flautaði aukaspyrnu og allt alveg vitlaust hjá stuðningsmönnum Grindavíkur ásamt leikmönnum ótrúleg ákvörðun alveg.
56. mín
InnHörður Sveinsson
ÚtGuðjón Pétur Lýðsson
Guðjón hlýtur að vera meiddur því hann var lang líflegastur hjá Valsmönnum í fyrri hálfleik.
61. mín
Gult spjald
Alexander Magnússon
Eftir glórulaust spark í að reyna að sparka í Valsara.61. mín
Rúnar Már Sigurjónsson með þrumuskot eftir aukaspyrnu en Óskar Pétursson varði boltann á línu og greip svo knöttinn. Óskar er alveg staðráðinn í því að halda hreinu.
66. mín
InnHafþór Ægir Vilhjálmsson
ÚtScott Ramsay
71. mín
Gult spjald
Úlfar Hrafn Pálsson
76. mín
Alexander Magnússon leggst hérna niður og heldur utan um hnéið á sér.
76. mín
InnKristinn Freyr Sigurðsson
ÚtKolbeinn Kárason
76. mín
InnAlex Freyr Hilmarsson
ÚtAlexander Magnússon
82. mín
MAAAARK!
Matthías Örn Friðriksson
Ólafur Örn Bjarnason átti skot í stöng rétt fyrir utan teig en boltinn fór í stöngina en Matthías Örn Friðriksson átti ekki erfit verkefni framundan og fyldi vel á eftir og lagði boltann í mark Valsmanna.85. mín
Kristinn Freyr Sigurðsson var næstum búinn að skora eftir klafs við marklínu heimamanna en Óskar Pétursson náði boltanum.
88. mín
Heimamennn komnir í hraðaupphlaup þrír gegn tveimur varnarmönnum Valsara og var Magnús Björgvinsson aðeins of eigingjarn og skaut boltanum yfir. Pape Faye stóð aleinn og beið eftir sendingu frá Magnúsi.
90. mín
Matthías Guðmundsson aftur í dauðafæri en Óskar Pétursson varði aftur meistarlega. Óskar búinn að eiga frábæran leik í kvöld.
90. mín
InnÓli Baldur Bjarnason
ÚtMagnús Björgvinsson
90. mín
Leik lokið hér í Grindavík og fyrsti sigur heimamanna staðreynd. Ég þakka fyrir mig, umfjöllun og viðtöl koma seinna í kvöld, takk fyrir.


