SKÝRSLAN: Blikar harka í fullt hús frá fimmtu hæð
Hvað réði úrslitum?
Karaktersigur hjá Blikum og mögulega fyrsta merki um 'meistaraheppni' ef svo má segja.
Blikar byrjuðu leikinn betur og voru betri aðilinn í fyrri hálfleik en þetta snérist svolítið í þeim seinni og Stjörnumenn fóru aðeins að láta finna fyrir sér. Gerðu vel að koma tilbaka og jafna leikinn en Viktor Örn sá um að slökkva í því partý stuttu fyrir leikslok með stökki frá 5.hæð að sögn fyrirliða síns.

Bestu leikmenn
1. Jason Daði Svanþórsson
Var hættulegastur í liði Blika fremst. Skoraði og ég gef honum stoðsendinguna á ská fyrir fyrsta markið líka. Hefði hæglega getað skorað fleirri í leiknum.
2. Höskuldur Gunnlaugsson
Var ógnandi og átti stoðsendinguna sem kláraði leikinn. Það eru nokkur nöfn sem gerðu tilkall hérna frá báðum liðum en ég gef fyrirliða Blika þetta.
Atvikið
Fyrsta mark Stjörnumanna.
Blikar allt annað en sáttir með að það hafi fengið að standa og vildu brot en það er þetta blessaða þriða markið í leikjum sem klisjan er kennd við. Stjörnumenn efldust við þetta mark og fengu trú.
Blikar allt annað en sáttir með að það hafi fengið að standa og vildu brot en það er þetta blessaða þriða markið í leikjum sem klisjan er kennd við. Stjörnumenn efldust við þetta mark og fengu trú.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar fara á toppinn með fullt hús stiga á meðan Stjörnumenn tapa sínum fyrsta leik í sumar.
Vondur dagur
Það er rosalega erfitt að fara ætla setja einhvern hér. Það voru einhverjir sem voru komnir með tilkall í fyrri hálfleik en þegar leið á leikinn þá jafnaðist hann rosalega út svo ég vill ekki gefa neinum þessa nafnbót.
Dómarinn - 4
Það var rosalega mikið um vafasöm atvik og það á báða boga. Fæst orð bera minnstu ábyrgð og allt það og við látum 4 nægja þarna.