SKÝRSLAN: FH með sigur á Víkingi R.
Hvað réði úrslitum?
Jafnræði var með liðunum í leiknum. FH var með betri pressu og hættulegar fyrirgjafir.
Bestu leikmenn
1. Shaina Faiena Ashouri
Skoraði tvö í síðasta leik og tvö í dag. Gæðaleikmaður sem skilar sér í báða vítateiga.
2. Sigríður Lára Garðarsdóttir
Fyrirliðinn vann marga skallabolta, bæði á miðjunni og í hornum. Hún var góð í að brjóta niður skyndisóknir Víkinga.
Atvikið
FH skora tvö mörk innan við mínútu í fyrri hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
FH með fullt hús stiga eftir tvo leiki en Víkingur með þrjú stig. Tímabilið nýbyrjað og nóg eftir af sumrinu.
Vondur dagur
Ég þarf að skrá þetta á miðverði Víkinga. Þær áttu erfitt með að spila út úr hápressu FH og í báðum mörkum Shainu er hún ódekkuð inn í vítateig.
Dómarinn - 9
Dæmdi leikinn vel, yfir engu að kvarta.


