Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Besta-deild karla
Hásteinsvöllur
Skýjað, 6 stiga hiti og köld gola.
ÍBV
ÍBV
1 - 2
KR
KR
0 - 13' Ægir Jarl JónassonKristinn Jónsson (sjm) 29'1 - 11 - 242' Kennie Knak ChopartAtli Hrafn Andrason 94'
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 511

SKÝRSLAN: KR sótti þrjú stig til Eyja

Hvað réði úrslitum?

KR-ingar nýttu færin sín betur en Eyjamenn sem fengu svo sannarlega tækifæri til að fá eitthvað út úr þessum leik.

Bestu leikmenn

1. Kennie Chopart

Flottur leikur hjá Kennie Chopart sem tryggði stigin þrjú fyrir KR með snyrtilegri afgreiðslu.

2. Atli Sigurjónsson

Var líflegur í KR-liðinu í dag, átti nokkra fína spretti. Þar á meðal sendinguna inná teiginn sem að lokum skilaði sigurmarkinu.

Atvikið

KR-ingar ná forystunni rétt fyrir hálfleik, Eyjamenn höfðu verið með nokkuð góð tök á leiknum fyrir markið. Erfitt fyrir Eyjamenn að fá mark í andlitið rétt fyrir hálfleik.

Hvað þýða úrslitin?

KR-ingar eru komnir með 7 stig og lyfta sér upp í 5. sæti með sigrinum. Eyjamenn sitja svekktir eftir með tvö stig að loknum 5. umferðum.

Vondur dagur

Eyjamenn eru að fá færi en eru ekki að nýta þau. Það þarf að gera til að fá eitthvað út úr leikjum gegn sterkum liðum eins KR.

Dómarinn - 8

Heillt yfir nokkuð góð frammistaða.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.