Fotbolti.net
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Lengjudeild kvenna
Würth völlurinn
Fylkir
Fylkir
0 - 1
Tindastóll
Tindastóll
0 - 145' Arna Kristinsdóttir82' Aldís María Jóhannsdóttir
Dómari: Tómas Wolfgang Meyer

SKÝRSLAN: Arna Kristins tryggði þrjú stig norður

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var heilt yfir jafn og þetta var svolítið spurning um hvort liðið kæmi boltanum í netið, sem Tindastóll gerði eftir hornspyrnu í lok fyrri hálfleiks.

Bestu leikmenn

1. Arna Kristinsdóttir

Skorar markið sem skilur liðin af og gerði það vel. Boltinn berst til hennar eftir hornspyrnu og hún er með nokkra varnarmenn fyrir framan sig en á hnitmiðað skot í vinstra hornið framhjá varnarmönnum og markverði Fylkis. Vörn Tindastóls var mjög þétt í dag og Arna spilaði vel þar.

2. Hannah Jane Cade

Var yfirveguð á boltann og stýrði spilinu á miðjunni hjá Tindastól. Átti nokkrar góðar sendingar og var með flottar hornspyrnur sem Stólarnir hefðu mátt nýta betur.

Atvikið

Þegar Helga Guðrún er tekin niður af Amber á 2. mínútu leiksins. Þetta var á mörkunum að vera inn í teig en það hefði getað breytt gangi leiksins að missa Amber út og ef Fylkir hefði mögulega fengið víti.

Hvað þýða úrslitin?

Tindastóll er með fullt hús stiga eftir fyrstu 2. umferðirnar en situr í 3. sæti á eftir FH og HK sem eru með betri markatölu. Fylkir enn án stiga.

Vondur dagur

Erfitt að taka einhvern út, leikurinn var frekar jafn og lítið um frábær tilþrif. Ætla að setja Murielle hérna fyrir að hafa ekki skorað úr allavega tveimur fínum færum sem hún fékk. Hún átti líka nokkrar misheppnaðar sendingar en miðað við gæðin sem hún býr yfir og hefur oft sýnt þá á hún að gera betur. Varnarlína Fylkis lokaði vel á hana en hún tekur líka mikið til sín og náði að opna svæði fyrir liðsfélaga sína.

Dómarinn - 6.5

Ágætlega dæmdur leikur. Maður setur spurningamerki hvort Fylkir hafi átt að fá vítaspyrnu í þessum leik en þyrfti að sjá þetta endursýnt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.