Fotbolti.net
Besta deildin
Sverrir Örn Einarsson
Besta-deild karla
Origo völlurinn
Fínar, hæg norðan átt skýjað hiti um 7 gráður og teppið grænt og slétt
Valur
Valur
4 - 0
ÍA
ÍA
Patrick Pedersen 44'1 - 0Tryggvi Hrafn Haraldsson 62'2 - 0Guðmundur Andri Tryggvason 65'3 - 0Tryggvi Hrafn Haraldsson 72'4 - 0
Dómari: Þorvaldur Árnason

SKÝRSLAN: Skagamörk í Valssigri á ÍA

Hvað réði úrslitum?

Þolinmæði og andlegur styrkur. Valsmenn voru þolinmóðir og héldu áfram að reyna finna leiðir í gegnum þétta vörn Skagamanna sem spiluðu sína taktík vel framan af fyrri hálfleik. Valsmenn uppskáru mark undir lok fyrri hálfleiks og þegar annað markið kom eftir rúmlega klukkustundar leik brotnaði Skagaliðið. Valsmenn gengu á lagið og bættu tveimur mörkum við og uppskar góðan 4-0 sigur.

Bestu leikmenn

1. Tryggvi Hrafn Haraldsson

Reyndist sveitungum sínum erfiður og skoraði tvö góð mörk. Var ógnandi úti vinstra megin í Valsliði sem átti sennilega sínar bestu 45 mínútur í dag.

2. Arnór Smárason

Annar Skagamaður sem átti góðan dag i liði Vals. Tvær stoðsendingar hjá og heilt yfir mjög góður leikur hjá þessum reynslubolta.

Atvikið

Mark Patrick Pedersen í lok fyrri hálfleiks. Setti leikinn í allt annað samhengi í þeim síðari og þvingaði gestina til að taka sénsa. Jafnaði Hemma Gunn á lista yfir flest deildarmörk fyrir Val með marki sínu.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn setjast í annað sæti deildarinnar með 13 stig að loknum fimm umferðum.
Skaginn situr í því sjöunda með fimm stig.

Vondur dagur

Eyþór Aron Wöhler mátti sín lítils gegn Hólmari Erni og Hedlund, Átti ekkert í þá í loftinu og tókst aldrei að nýta þann góða hraða sem hann býr yfir gegn þeim.

Dómarinn - 8

Þorvaldur átti bara virkilega fínan dag á flautunni. Allir geta gert mistök en það er ekki á allra færi að koma til baka með sjálfsöryggi líkt og mér fannst hann gera í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.