SKÝRSLAN: Fram og FH skildu jöfn í kaflaskiptum leik
Hvað réði úrslitum?
Gríðarlega kaflaskiptur leikur. Fram byrjaði báða hálfleikana vel en FH vann sig inn í báða hálfleikana. Bæði lið sýndu góðan karakter að koma til baka. Framarar þegar FH komast yfir og svo FH að finna jöfnunarmarkið eftir að Fram náði að snúa leiknum sér í vil.
Bestu leikmenn
1. Vuk Oskar Dimitrijevic (FH)
Vuk Oskar var maður leiksins fyrir mér í kvöld. Skapaði hættur þegar hann fékk boltann út á væng og kom að báðum mörkum FH. Fískaði víti og skoraði síðan magnað mark sjálfur.
2. Fred Saraiva (Fram)
Var hættulegur fram á við í kvöld og kom að seinna marki Fram. Flottur leikur hjá Fred í kvöld.
Atvikið
Jöfnunarmarkið hjá FH - Eetu Mömmö fékk boltann úti við hliðarlínu og átti frábæra sendingu yfir á Vuk sem gerði gríðarlega vel og setti boltann í netið. Fullkomið fótboltamark.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði lið byrja Bestu deildina á einu stigi. Fram fer í Kórinn í næstu umferð og mætir HK á meðan FH fær Stjörnuna heim í Kaplakrika.
Vondur dagur
Jannik Pohl (Fram) - Jannik Pohl var óheppinn í kvöld að meiðast í vítinu þegar Sindri Kristinn braut á honum og gat ekki lokið leik.
Dómarinn - 6
Báðir vítaspyrnudómarnir spot on en missti aðeins völdin þegar leið tók á leikinn.




