SKÝRSLAN: Þægileg þreföldun fyrir Víkinga
Hvað réði úrslitum?
Víkingar voru öflugra liðið bæði með og án bolta í leiknum, sköpuðu sér fleiri færi og nýttu tvö þeirra og unnu nokkuð þægilega sigur á Samsung í kvöld. Stjarnan átti í fullu tré við Víkinga framan af en annað liðið var einfaldlega sýnilega betra og það kom betur og betur í ljós þegar leið á leikinn.
Bestu leikmenn
1. Davíð Örn Atlason
Frábær leikur hjá Davíð sem heldur betur minnti á sig í kvöld. Átti að loka á Ísak Andra og gerði það virkilega vel. Lagði einnig upp fyrsta markið.
2. Pablo Punyed
Pablo er eiginlega alltaf góður, var ekkert frábær gegn Val í undanúrslitum Lengjubikarsins og sá leikur fór eins og hann fór. Hann smitar af sér með vinnslunni inn á miðsvæðinu, er smá ,,dirty" sem þarf líka. Leggur upp seinna markið og sýndi í kvöld að hann er sennilega mikilvægasti leikmaður liðsins.
Atvikið
Fyrsta markið gerði mikið fyrir Víkinga, svo í lok fyrri fær Stjarnan tækifæri á að jafna en einhvern veginn fór boltinn ekki inn eftir atgang inn á teig Víkinga.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar þrefalda þann stigafjölda sem liðið fékk gegn Stjörnunni í fyrra með sigrinum í kvöld, mjög heilsteypt frammistaða. Segir sig svo nokkuð sjálft svo að þetta var ekki byrjunin sem Stjarnan óskaði sér.
Vondur dagur
Hilmar Árni átti ekki góðan dag hjá Stjörnunni, náð ekki að komast nægilega mikið í boltann og virðist þurfa leiki til að koma sér í betri takt - sem er alveg skiljanlegt eftir þessa löngu fjarveru.
Dómarinn - 8
Fannst Helgi Mikael vera með góð tök á leiknum.




