SKÝRSLAN: Bæði lið svekkt með jafntefli á Greifavellinum
Hvað réði úrslitum?
KR var með völdin í seinni hálfleik og komst verðskuldað yfir. Þorri Mar Þórisson fékk á sig vítaspyrnu en bætti upp fyrir það með marki undir lokin. Frábært hugarfar hans og KA manna að gefa þetta ekki upp á bátinn.
Bestu leikmenn
1. Theodór Elmar Bjarnason
Var virkilega líflegur í fyrri hálfleiknum og stýrði leiknum vel í þeim síðari.
2. Olav Öby
Kemur virkilega sterkur inn í lið KR en það fór þó að draga af honum þegar leið á síðari hálfleikinn.
Atvikið
Pætur Petersen leikmaður KA komst í DAUÐAFÆRI snemma leiks en setti boltann framhjá. Það hefði verið gríðarlega sterkt fyrir KA að ná forystunni þar.
Hvað þýða úrslitin?
Lið sem er spáð í 4. og 5. sæti. KA ætlar ekki að tapa mörgum stigum á Greifavellinum og því svekkjandi að fá aðeins eitt stig gegn miklum keppinautum. KRingar svekktir að ná ekki að halda þetta út.
Vondur dagur
KA menn fengu sérstaklega tækifæri til að gera mun betur fyrir framan markið en boltinn ætlaði ekki inn.
Dómarinn - 7
Bara flottur leikur. Vítið hárréttur dómur að mínu mati.



