SKÝRSLAN: Valsmönnum dugði seinni hálfleikurinn
Hvað réði úrslitum?
Einstaklingsgæði Vals réðu þar miklu. Þegar þeir fundu taktinn í síðari hálfleik þrýstu þeir gestunum neðar og neðar á völlinn og eitthvað varð undan að láta.
Bestu leikmenn
1. Adam Ægir Pálsson
Manna sprækastur Valsmanna í fyrri hálfleik, hélt uppteknum hætti í þeim síðari og uppskar gott mark þegar hann jafnaði metin.
2. Alex Freyr Hilmarsson
Stýrði pressu Eyjamanna af röggsemi í fyrri hálfleik og fær skráða stoðsendingu fyrir samspil sitt við Felix í fyrsta marki leiksins. Dró af honum í þeim síðari en í jafn kaflaskiptum leik er varla hægt að líta fram hjá honum.
Atvikið
Sú ákvörðun Arnars G að færa Aron Jó úr senternum niður í holuna. Sú ákvörðun gerði gæfumunin í sóknarleik Vals og varð til þess að hann fann sér svæði til að þræða boltann innfyrir á Tryggva sem lagði upp sigurmark Vals.
Hvað þýða úrslitin?
Valur sækir sín fyrstu þrjú stig í sumar á meðan að ÍBV er án stiga. Lítið annað hægt að segja um það.
Vondur dagur
Framlína ÍBV getur nagað sig í handabökin fyrir færin sem fóru forgörðum í fyrri hálfleik. Þeir voru alls ekki slakir en mönnum er refsað fyrir að nýta ekki færin sín.
Dómarinn - 6
Var að mínu mati jafnvel full spar á sjöld og brot sem verðskulduðu spjald fengu að sleppa. Framan náði leikurinn líka aldrei neinu tempói og mikið um stopp. Annars bara þokkalegt hjá lögregluvarðstjóranum,



