Fotbolti.net
Besta deildin
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Fylkir
Fylkir
Besta-deild karla
Würth völlurinn
Léttskýjað, smá gola og 8 gráður
1 - 2
Keflavík
Keflavík
Benedikt Daríus Garðarsson (víti) 30'1 - 01 - 174' Sami Kamel1 - 292' Dagur Ingi Valsson
Dómari: Vilhjálmur Alvar
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Kamel og karakter hjá Keflvíkingum

Hvað réði úrslitum?

Fylkir leiddi verðskuldað í hálfleik og hefði getað náð stærri forystu. Siggi Raggi náði að stilla strengina fullkomlega í seinni hálfleik, Keflvíkingar tóku skyndilega yfir leikinn og horfðu aldrei til baka.

Bestu leikmenn

1. Sami Kamel - Keflavík

Filterlaus Kamel. Miðað við fyrsta leik hefur Keflavík náð í afskaplega öflugan bita í danska miðjumanninum. Var ákveðinn umferðarstjóri á miðsvæðinu, sýndi gæði sín og jafnaði leikinn með smekklegu marki.

2. Dagur Ingi Valsson - Keflavík

Hetja Keflvíkinga. Dagur var búinn að búinn að biðja um skiptingu þegar hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

Atvikið

Sigurmark Dags sem skoraði og fékk svo krampa í báða kálfana og fór af velli strax á eftir.

Hvað þýða úrslitin?

Þarna mættust tvö lið sem báðum er spáð harðri fallbaráttu í sumar. Þó ekkert ráðist í fyrstu umferð þá gætu sigrar í innbyrðis viðureignum neðstu liðanna reynst ákaflega dýrmæt þegar talið verður upp úr pokanum í lokin.

Vondur dagur

Fylkismenn fóru illa með fullt af góðum færum í fyrri hálfleik. Þeir léku vörn Keflavíkur grátt en uppskáru bara eitt mark úr vítaspyrnu. Í seinni hálfleik féll Fylkisliðið of langt til baka og menn gerðu sig seka um dapran varnarleik.

Dómarinn - 8,5

Villi Alvar og hans menn fara vel af stað á tímabilinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.