Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Besta-deild karla
Würth völlurinn
Skýjað, smá gola og hiti um 8 gráður
Fylkir
Fylkir
1 - 6
Valur
Valur
0 - 119' Adam Ægir Pálsson0 - 221' Andri Rúnar Bjarnason0 - 341' Unnar Steinn Ingvarsson (sjm)0 - 445' Aron JóhannssonBenedikt Daríus Garðarsson 48'1 - 41 - 558' Sigurður Egill Lárusson1 - 681' Hlynur Freyr Karlsson
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Valur valtaði yfir Fylki í Árbænum

Hvað réði úrslitum?

Valur spilaði frábæran leik í kvöld og voru yfir á flest öllum stöðum vallarins. Kláruðu leikinn í fyrri hálfleik með fjórum frábærum mörkum. Gáfu síðan aðeins eftir í byrjun síðari hálfleik en gáfu aftur í og kláruðu leikinn vel.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Egill Lárusson (Valur)

Siggi Lár var frábær í vinstri bakverðinum hjá Val í kvöld og var upp og niður vinstri vænginn. Lagði upp tvö og skoraði eitt sjálfur. Fullkomin dagur á skrifstofunni hjá Sigga Lár í kvöld.

2. Adam Ægir Pálsson (Valur)

Adam Ægir var frábær í fyrri hálfleik en dró aðeins af honum í síðari. Lagði upp og skoraði sjálfur eitt í kvöld og AP heldur áfram að sýna hvers megnugur hann er.

Atvikið

Sjálfsmarkið hjá Unnari Stein - Lúkas Logi fékk boltann við vítateig Fylkismanna og gaf boltann fyrir og Unnar Steinn hamraði boltann í sitt eigið net. Dagur sem Unnar Steinn væri til í að gleyma sem fyrst.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkismenn eru á botni deildarinnar með þrjú stig á meðan Valsmenn eru komnir upp að hlið Víkinga á toppi deildarinnar og eru bæði liðin með tólf stig en Víkingar eiga leik inni á morgun.

Vondur dagur

Varnarleikur Fylkis - Varnarleikurinn var alls ekki góður hjá Fylkismönnum í kvöld og ef liðið ætlar að gera eitthvað í þessari deild þá þarf liðið að laga varnarleik liðsins.

Dómarinn - 9.0

Pétur Guðmundsson þurfti ekki að gera mikið í kvöld en var flottur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.