Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
KA
KA
4 - 2
FH
FH
Daníel Hafsteinsson 45'1 - 0Pætur Joensson Petersen 50'2 - 02 - 159' Hörður Ingi Gunnarsson Sveinn Margeir Hauksson 75'3 - 13 - 283' Úlfur Ágúst Björnsson (víti)Elfar Árni Aðalsteinsson 88'4 - 2
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Markaveisla á Greifavellinum

Hvað réði úrslitum?

FH var með yfirhöndina lengst af í fyrri hálfleik en missti stjórn á leiknum eftir að KA komst yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Lagði upp tvö fyrstu mörkin og var líflegur í sóknarleik KA.

2. Daníel Hafsteinsson

Átti frábæran leik og kom KA mönnum á bragðið með góðu marki.

Atvikið

Björn Daníel Sverrisson var borinn af velli eftir rúman hálftíma leik. Mikið áfall fyrir FH en hann virtist meiðast á hné. Tíu mínútum síðar lá Sindri Kristinn Ólafsson markvörður liðsins eftir samstuð við samherja en hann kláraði leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

KA komið i 4. sætið með 8 stig eftir fimm umferðir. Mikið fagnaðarefni fyrir norðanmenn að skora mörg mörk í dag, það hefur vantað upp á markaskorunina í upphafi. FH heldur áfram í brasi á útivelli, 10 mörk á sig í þremur leikjum og eitt stig. Liðið er í 5. sæti með sjö stig.

Vondur dagur

Útivöllurinn hjá FHingum er ekki að gefa. Voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik en nýttu sér það alls ekki nægilega vel.

Dómarinn - 7

Var með góða stjórn á leiknum. Ekkert út á hann að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.