SKÝRSLAN: Töpuð stig hjá HK í Kórnum
Hvað réði úrslitum?
Herdís Halla var eiginlega það sem réði úrslitum í dag. Væri svo fáránlega mikið til í að sjá xg tölur HK úr þessum leik þar sem að Herdís tók hvert dauðafærið á fætur öðru. Augnablik geta prísað sig sælar að hafa fengið stig í dag.
Bestu leikmenn
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir
Skrýtið að velja markmann sem fær á sig tvö mörk sem mann leiksins en það er bara ekki annað hægt eftir frammistöðuna sem hún sýndi í seinni hálfleik. Fáránlega spennandi leikmaður sem er þarna á ferð.
2. Brookelynn Paige Entz
Brookelynn sýndi í dag hvers vegna það er verið að tala um að hún gæti orðið best í þessari deild í sumar. Það var alltaf hætta þegar hún fékk boltann og svo var hún grjóthörð varnarlega líka.
Atvikið
Þrefalda varslan hennar Herdísar var atvik leiksins að mínu mati. Þetta var á þeim kafla sem að HK-ingar sóttu hvað mest að marki Augnabliks og þessi varsla heldur þeim inni í þessu. Get ímyndað mér að sjálfstraustið hafi stækkað um þrjú númer hjá Herdísi eftir vörslurnar og hún tekur fullt af mikilvægum boltum eftir þetta.
Hvað þýða úrslitin?
Úrstlitin þýða stig á haus í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.
Vondur dagur
Olga Ingibjörg fær þetta í dag. Ekki vegna lélegrar frammistöðu heldur vegna þess að hún þurfti að fara af velli eftir 20 mínútur eftir að hafa fengið höfuðhögg. Vonandi er það ekki alvarlegt og hún getur snúið aftur á völlinn sem fyrst.
Dómarinn - 8
Guðni var með leikinn nokkurn veginn undir control heilt yfir. Ég hefði viljað sjá hann nota flautuna nokkrum sinnum þegar hann gerði það ekki en samt sem áður flott frammistaða.


