SKÝRSLAN: HK í þriðja og þriðja tap KR í röð
Hvað réði úrslitum?
Sigurmarkið kom snemma leiks eftir langa sendingu inn á vítateig KR. Svona nánast upp úr engu mark sem endaði á að ráða úrslitum. KR var líklegra til að jafna en að HK myndi bæta við í seinni hálfleiknum en inn vildi boltinn ekki; stangarskot og dauðafæri forgörðum hjá KR.
Bestu leikmenn
1. Arnþór Ari Atlason
Virkilega góður í leiknum, sinnti sinni vinnu vel á miðsvæðinu og skoraði auðvitað sigurmarkið.
2. Atli Hrafn Andrason
Heilt yfir mjög sprækur, líklegur fram á við og duglegur í sinni varnarvinnu sem var mikil í seinni hálfleik. Klókur þegar Jakob fékk rautt að koma sér fram fyrir hann. Birkir Valur og Ahmad Faqa fá einnig 'shout'.
Atvikið
Það eru mörg atvik, sigurmarkið, rauða spjaldið, klúðrið hjá Jóhannesi og svo mögulega hendi víti í seinni hálfleik á Örvar. Veljum samt sigumarkið.
Hvað þýða úrslitin?
Þriðja tap KR í röð og ekkert mark skorað. Það er áhyggjuefni og næstu tveir leikir eru gegn Val og Breiðabliki. HK er með tíu stig í 3. sæti deildarinnar. Frábær byrjun hjá nýliðunum.
Vondur dagur
Set alveg spurningarmerki við Simen í markinu, finnst hann eiga gera betur. Svo er það því miður unga kynslóðin, Benoný Breki náði ekki að sýna mikið á sínum gamla heimavelli á Seltjarnarnesi og Jóhannes Kristinn mun eflaust hugsa talsvert um skallafærið sem hann fékk í byrjun seinni.
Dómarinn - 6
Rétt að dæma ekki víti og langflestar ákvarðanir góðar. Eyþór Wöhler hefði eflaust getað fengið gult fyrir uppsöfnuð brot en slapp. Erfitt svo að sjá að Ívar Orri brjóti á Simen í lokin, en það skipti ekki sköpum.




