Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
Framvöllur
Fram
Fram
3 - 1
ÍBV
ÍBV
0 - 130' Sverrir Páll HjaltestedGuðmundur Magnússon (víti) 34'1 - 1Eiður Aron Sigurbjörnsson (sjm) 68'2 - 1Þórir Guðjónsson 80'3 - 1
Dómari: Vilhjálmur Alvar
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Fram er komið með sigur á töfluna

Hvað réði úrslitum?

Fram hafði gæðin sem þurfti. Frábær aukaspyrna sem kom þeim yfir og svo voru Eyjamenn heldur gjöfullir í þriðja markinu. Fyrir utan þessi mörk var mikið jafnræði á liðunum.

Bestu leikmenn

1. Fred

Var frábær fyrir Fram í dag. Fór flest allt í gegnum hann. Steig svo sannarlega upp í þessum leik.

2. Már Ægisson

Var flottur í bakverðinum. Var með hættuleg hlaup og sótti víti. ÍBV réðu illa við hann oft á köflum

Atvikið

Rauða spjaldið. Það fór allt í háaloft og hefðu vel geta flogið fleirri spjöld á loft.

Hvað þýða úrslitin?

Fram eru síðastir til þess að skila inn sigri á töfluna í Bestu deildinni og lyfta sér úr neðsta sætinu. Eyjamenn ná ekki að tengja þriðja sigurleikinn í röð

Vondur dagur

Halldór Jón Sigurður Þórðarson verður að taka þetta á sig.

Dómarinn - 6

Var með held ég allar stóru ákvarðinar réttar og heilt yfir ágætur leikur en það eru samt litlar ákvarðanir hér og þar sem voru kannski furðulegar en þó ekki að það hafi haft áhrif á leikinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.