Fotbolti.net
@HalldorGauti08Halldór Gauti Tryggvason
Lengjudeild kvenna
Framvöllur
Fram
Fram
2 - 1
HK
HK
Þórey Björk Eyþórsdóttir 41'1 - 01 - 157' Guðmunda Brynja ÓladóttirAlexa Kirton 59'2 - 1
Dómari: Abdelmajid Zaidy
Myndir: Tryggvi Már Gunnarsson

SKÝRSLAN: Fram með glæsilegan sigur í Úlfarsárdalnum

Hvað réði úrslitum?

Barráttuvilji Fram var algjörlega til fyrirmyndar í leiknum í kvöld. Fram spilaði mjög flottan fótbolta og var heilt yfir betri aðilinn að mínu mati. HK gerði þetta hins vegar alls ekki auðvelt fyrir þær þar sem að gestirnir fengu slatta af góðum færum sem hefðu hæglega getað orðið að mörkum.

Bestu leikmenn

1. Elaina Carmen La Macchia

Elaina var frábær í markinu í dag. Hún varði tvö dauðafæri og stóð sig heilt yfir bara gríðarlega vel í kvöld.

2. Þyrí Ljósbjörg Willumsdóttir

Þyrí var mjög góð á miðju Fram í kvöld. Þyrí var frábær bæði í varnar- og sóknarstörfum. Svo má náttúrulega ekki gleyma frábæru stoðsendingunni í fyrri hálfleik

Atvikið

Atvikið mundi vera frábær þriggja mínútna kafli í seinni hálfleiknum, þar sem að bæði lið skoruðu.

Hvað þýða úrslitin?

HK er ennþá í þriðja sætinu eftir leikinn í kvöld. Fram lyftir sér hins vegar upp um eitt sæti, upp í það sjöunda, yfir FHL.

Vondur dagur

Það var svo sem engin sem að átti áberandi vondan dag í dag. Mistök voru gerð í varnarlínu HK þegar þær fengu á sig seinna markið. Þannig má kannski segja að þessi titill fari til þeirra.

Dómarinn - 7

Abdelmajid Zaidy var bara mjög fínn í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.