SKÝRSLAN: KA komið áfram í Evrópu í fyrsta skipti!
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn úti á Englandi var erfiðari en leikurinn heima, Connah's Quay stýrði ferðinni á löngum köflum en mark frá Daníel Hafsteinssyni strax á 16. mínútu leiddi til þess að heimamenn urður örventingafullir og sigur KA manna varð að staðreynd þegar Elfar Árni skoraði á 77. mínútu. Heimamenn mega eiga það að þeir börðust allan leikinn og gáfust aldrei upp.
Bestu leikmenn
1. Daníel Hafsteinsson
Danni skoraði fyrsta mark leiksins með frábærum skalla úr föstu leikatriði. Fyrir utan það þá var hann iðinn á miðjunni og skilaði góðu dagsverki bæði sóknar og varnarlega.
2. Ívar Örn Árnason
Heimamenn áttu virkilega góða kafla í leiknum og ógnuðu marki KA manna á stundum. Það þurfti því góða frammistöðu frá hafsentum KA manna og var Ívar þar eins og kóngur í ríki sínu. Hann skallaði bolta út hverjum á eftir öðrum og vann flest öll sín einvígi.
Atvikið
Það að fyrsta markið skildi koma strax á 16. mínútu var gríðarlega mikilvægt fyrir KA menn. Það þýddi að þeir leiddu einvígið 3-0 og þeir gátu spilað nokkuð pressulausir það sem eftir var.
Hvað þýða úrslitin?
KA er komið áfram í næstu umferð Sambandsdeildarinnar! Þetta er í fyrsta skipti í sögu klúbbsins sem að þeir fara áfram í evrópukeppni.
Það verður að koma fram hér einhversstaðar að það voru 522 sem mættu á þennan leik og af þeim voru á bilinu 30-50 KA menn. Það heyrðist í einum stuðningsmanni heimamanna af og til undir leiknum, en norðanmenn í stúkunni sýndu frábæran stuðning og þar sem ég var meðal þeirra, þá vil ég hrósa öllum þeim sem sungu með mér.
Vondur dagur
Neil Gibson þjálfari Connah's Quay sagði eftir síðasta leik þar sem þeir töpuðu einnig 2-0, að þeir þyrftu að skora snemma í þessum leik til að eiga möguleika. Það var hinsvegar KA sem skoraði snemma og úrslitun réðust nokkrun vegin á því marki.
Dómarinn - 7
Fyrsta spjaldið sem hann gaf Grímsa var bull, það var þó rétt þegar hann dæmdi ekki víti í fyrri hálfleik þegar heimamenn báðu um það. Hinsvegar hefði hann getað tekið harðar á því seinna í leiknum þegar heimamenn byrjuðu að bjóta ansi harkalega á norðanmönnum.



