Fotbolti.net
Patrekur Orri Guðjónsson
Lengjudeild kvenna
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
3 - 1
Grótta
Grótta
0 - 112' Ariela LewisJamie Renee Joseph 53'1 - 1Hlín Heiðarsdóttir 68'2 - 1Cornelia Baldi Sundelius (sjm) 88'3 - 1
Dómari: Sindri Snær A van Kasteren

SKÝRSLAN: Leikur tveggja hálfleika í Mosfellsbænum

Hvað réði úrslitum?

Grótta nýttu sér ekki nóg að vera með yfirhöndina í fyrri hálfleiknum, Aftureldingarstelpur mættu mun betri í seinni hálfleikinn og nýttu sín færi.

Bestu leikmenn

1. Eva Ýr Helgadóttir

Stórkostleg í markinu í dag, henni að þakka að staðan var ekki 0-4 í hálfleik. Ótrúlega traust í rammanum!

2. Jamie Renee Joseph

Byrjar leikinn í hafsent, er færð uppá miðjuna eftir 10 mínútur eftir að Hildur meiddist. Svo skorar hún og leggur upp, er hægt að biðja um meira?

Atvikið

Fyrsta mark Aftureldingar. Með þessu marki fengu Aftureldingarstelpur blóð á tennurnar og tóku yfir leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding jafnar Gróttu að stigum, bæði lið eru með 17 stig í 5. og 6. sæti. Toppbaráttan er ennþá opin fyrir bæði lið.

Vondur dagur

Cornelia Baldi Sundelius í marki Gróttu átti virkilega vondan dag í dag, leikur sem hún vill gleyma sem fyrst. Missir boltann í fyrsta markinu og óheppilegt sjálfsmark.

Dómarinn - 5/10

Skrítinn leikur hjá Sindra, oft sem að hann hefði átt að vera harðari með spjöldin og leyfði leiknum að fljóta þegar augljós brot áttu sér stað. Nokkur skrítin atvik áttu sér stað hjá AD2, honum Kristoferi, þar á meðal ein galin rangstæða sem var dæmd.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.