Fotbolti.net
Besta deildin
Halldór Gauti Tryggvason
Besta-deild kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
2 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 134' Hafdís Bára HöskuldsdóttirSnædís María Jörundsdóttir 36'1 - 1Breukelen Lachelle Woodard 45'2 - 12 - 292' Hulda Ösp Ágústsdóttir
Dómari: Andri Vigfússon
Áhorfendur: 217
Myndir: Tryggvi Már Gunnarsson
Leik lokið!
Fjörugum leik í Hafnafirðinum lokið! Stórskemmtilegur fótboltaleikur stúrfullur af mörkum, færum, spennu oog dramratík!

Takk fyrir samfylgdina!
Víkingur R.
92. mín
ÞÆR JAFNAA!!!

Hulda Ösp Ágústsdóttir

Í uppbótartíma eru Víkingar að jafna þennan leik! FH fengið helling af færum til að ganga frá þessu en það eru gestirnir sem skora seint! Darraðardans í teignum og HUlda potar honum inn
91. mín
Það eru þrjár mínútur í uppbótartíma.
90. mín
Hvernig fór hann ekki inn!?!?
ALgjört dauðafæri fyrir FH-inga að ganga frá þessu en ekki vildi boltinn fara inn.
87. mín
Víkingsliðið að komast hærra á völlinn. Fáum við jöfnunarmark!?
84. mín
Víkingur fær horn.

Ekkert verður úr því.
Víkingur R.
83. mín
InnTara Jónsdóttir
ÚtEmma Steinsen Jónsdóttir
FH
80. mín
InnBerglind Freyja Hlynsdóttir
ÚtÍda Marín Hermannsdóttir
FH-ingar búnir með allar 5 skiptingarnar.
78. mín
Skot langt fyrir utan teig. Skotið meðfram jörðinni en Birta handsamar hann í marki Víkings.
75. mín
Seinni hálfleikurinn verið mikið lokaðri. FH meira með boltann á meðan Gestirnir leita af jöfnunarmarki
Víkingur R.
74. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtBirta Birgisdóttir
Víkingur R.
74. mín
InnHulda Ösp Ágústsdóttir
ÚtHafdís Bára Höskuldsdóttir
73. mín
FH fær horn.

Gott horn. Skalli framhjá.
70. mín
Samstuð inn í teig FH-inga. Gestirnir vilja Vítaspyrnu en Andri dómari segir nei.
69. mín
Gestirnir að leita sér að tækifærum til að jafna. Erfitt að finna glufu á þessu FH-liði.
FH
68. mín
InnErla Sól Vigfúsdóttir
ÚtThelma Karen Pálmadóttir
Víkingur R.
66. mín
InnRachel Diodati
ÚtSvanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir
FH
61. mín
InnHalla Helgadóttir
ÚtHildigunnur Ýr Benediktsdóttir
FH-ingar gera þrefalda skiptingu.
FH
61. mín
InnBirna Kristín Björnsdóttir
ÚtValgerður Ósk Valsdóttir
FH
61. mín
InnMargrét Brynja Kristinsdóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
58. mín
Færi!
Freyja með sprett inn á teig FH-inga. Hún lætur vaða en boltinn tiltölulega beint á Aldísi. Hún missir hann úr höndunum og boltinn skoppar á slánni. Aldís nær hins vegar boltanum aftur
53. mín
Skot á mark!
Freyja fær boltann úti hægra meginn og á skot á mark. Aldís ver í marki FH-inga
52. mín
Seinni hálfleikur verið jafn hingað til. Bæði lið en að fóta sig eftir hléið.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Fyrri 45 búnar í þessum stórskemtilega fótboltaleik. Endanna á milli og hellingur af færum. FH leiðir þegar gengið er til búningsklefa!
FH
45. mín
Frábært mark!

Breukelen Lachelle Woodard

FH-ingarnir komnir yfir!!

Geggjað uppspil hjá FH! Spila sig upp vinstri kantinn og koma sér inn á teiginn. Þar kemur góður bolti á fjær og þar lúrir Breukelen sem kemur boltanum í netið! FH kemst yfir rétt fyrir hálfleik!

2-1!
45. mín
Ein mínúta í uppbótaríma.
43. mín
Góð varsla
Emma fær boltann úti hægra meginn og lætur vaða á mark FH-inga. Fast skot en Aldís ver.
40. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað fyrir FH-inga

Boltinn inn á teiginn. Mikill darraðardans inn á teignum en Víkingar ná að hreina!
Víkingur R.
39. mín
Gult spjald

Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir

Breukelen við það að komast í gegn en Svanhildur fellir hana. Réttur dómur.
FH
36. mín
MAAARK!

Snædís María Jörundsdóttir

Þær voru ekki lengi að jafna þetta! Boltinn fyrir og Snædís skallar í átt að marki. Birta í þessu en nær ekki að halda boltanum úti.

1-1!
Víkingur R.
34. mín
Víkingur tekur forystuna!!!

Hafdís Bára Höskuldsdóttir

Eftir langa sókn FH-inga sækja gestirnir hratt. Góður sprettur upp kantinn, boltinn fyrir og Hafdís klárar vel

0-1!
29. mín
Víkingur fær horn.

Skemmtileg útfærsla og Erna fær boltann í teginum. Skotið hennar rétt yfir
24. mín
Dauðafæri!
Góð sending inn fyrir á Breukelen. Hún gerir vel er hún kemst fram hjá Birtu í marki Víkings en varnarmenn gestanna rétt ná að komast fyrir skotið!
FH
22. mín
Gult spjald

Valgerður Ósk Valsdóttir

20. mín
Gott úthlaup
Hafdís við það að komast í gegn en gott úthlaup hjá Aldísi.
17. mín
Víkingur fær horn.

Ekkert verður úr því.
16. mín
Góð sending upp hægri kantinn og er Thelma með helling af plássi fyrir framan sig. Hún kemur boltanum fyrir en enginn nær til hanns.
15. mín
Gestirnir komnir í vænlega stöðu en Freyja er rangstæð.
11. mín
Skot í slánna!
Hvað er í gangi!? Endanna á milli þessar mínúturnar. Í þetta sinn er það Bergdís sem á fast skot í átt að marki FH. Hittir hann vel en boltinn hafnar í slánni.
10. mín
Skot framhjá
Víkingur í skyndisókn. Sigdís fær boltann úti vinstra megin, snýr inn á völlin og skýtur. Með mann í sér og skotið framhjá.
9. mín
FH að ógna!
Annað gott færi fyrir FH-inga. Boltinn fyrir markið en skotið rétt framhjá.
8. mín
Hvílík varsla!!
Góð sókn hjá FH-ingum. Breukelen kemur boltanum inn á tiginn þar sem að hann skoppar á milli liða. Boltinn berst á Ídu sem neglir honum á markið. Geggjað skot en heimsklassa varsla hjá Aldísi í markinu!
6. mín
FH fær horn.

Gestirnir hreinsa.
3. mín
Nokkuð jafnar upphafsmínútur. Orkumikil byrjun hjá báðum liðum. FH heldur vel í boltann á meðan gestirnir reyna að sækja hratt.
1. mín
Leikur hafinn
FH byrjar með boltann.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja!
Liðin ganga inn á völlinn. Fáum vonandi fjörugan leik!
Fyrir leik
Strekkingsvindur í Hafnarfirðinum í dag. Léttskýjað og 13°C!
Fyrir leik
Dómarateymið
Andri Vigfússon dæmir leikinn hér í dag og verða það þeir Sigurður Schram og Óliver Thanh Tung Vú sem verða með flöggin. Eftirlitsmaður er Ólafur Ingi Guðmundsson og varadómari er Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Staðan í deildinni fyrir leikinn í kvöld!
Breiðablik 18 stig
Þór/KA 15 stig
Valur 15 stig
Stjarnan 9 stig
Víkingur R. 7 stig
Tindastóll 6 stig
FH 6 stig
Fylkir 5 stig
Þróttur R. 1 stig
Keflavík 0 stig
Fyrir leik
Cecilía spáir í spilin!
Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir spáði fyrir um komandi umferð Bestu deildarinnar! Hún spáir gestunum sigri hér í dag.

FH 0 - 1 Víkingur R.
Þetta verður mjög jafn leikur en mér finnst líklegt að John sé búinn að drilla sitt lið vel fyrir þennan leik og þær vinna 0-1 baráttusigur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingur R.
Víkingur er í 5. sæti deildarinnar fyrir leikinn í kvöld en nýliðarnir úr Fossvoginum skutust upp um fjögur sæti eftir 1-0 sigur á Þrótti í síðustu umferð. Þar var það Sigdís Bárðardóttir sem skoraði eina mark leiksins. Víkingur mætti Aftureldingu í Mjólkurbikarnum í síðustu viku. Afturelding gerði sér lítið fyrir og sló ríkjandi meistara Víkings R. úr leik.
Gestirnir eru því pottþétt ólmar til að bæta upp fyrir þetta tap og má búast við hörkuleik hér í dag!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FH
FH situr í 7. sæti með sex stig fyrir leikinn í kvöld. FH er hins vegar einungis einu stigi fyrir neðan Víking og geta því komist upp fyrir gestina í deildinni, með sigri hér í kvöld. FH-ingar mættu liði Stjörnunnar í síðustu umferð deildarinnar og töpuðu þar 4-3 eftir stórbrotin leik. FH liðið spilaði á móti FHL í Mjólkurbikarnum um síðustu helgi og komust þar áfram í átta liða úrslit eftir 3-2 sigur. FH-ingum er spáð 4. sætinu í deildinni, af spekingum fotbolta.net, og verður spennandi að sjá hvernig þeim tekst til í sumar!

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Heil og sæl!
Góðan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu á viðuregin FH og Víkings í Bestu deild kvenna! Leikurinn fer fram á Kaplakrika-vellinum í Hafnarfirðinum og hefst kl. 14:00

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.