Leik lokið!
Stigin þrjú í Mosfellsbæ
90. mín
+6
Horn. D/R.
Horn. D/R.
90. mín
+5
Aron Máni með flotta fyrirgjöf frá vinstri. Boltinn yfir á Rúnar Helga sem reynir að leggja boltann inn í teig. Gestirnir losa boltann burt.
Aron Máni með flotta fyrirgjöf frá vinstri. Boltinn yfir á Rúnar Helga sem reynir að leggja boltann inn í teig. Gestirnir losa boltann burt.
90. mín
+4
Jóhann Örn með frábæra stungusendingu í gegn. Amin er eldfljótur og kemur sér í fínt færi en skot hans ekki nægilega gott. Jökull ver vel og heldur bolta.
Jóhann Örn með frábæra stungusendingu í gegn. Amin er eldfljótur og kemur sér í fínt færi en skot hans ekki nægilega gott. Jökull ver vel og heldur bolta.
90. mín
InnAron Jónsson
ÚtElmar Kári Enesson Cogic
+3
90. mín
InnJóhann Örn Sigurjónsson
ÚtBreki Hólm Baldursson
+3
90. mín
Lokamínúta venjulegs leiktíma.
87. mín
InnAron Máni Sverrisson
ÚtNikola Kristinn Stojanovic
85. mín
Elmar gerir frábærlega úti hægra megin. Finnur Patrek Orra inni í teig. Patrekur nær skoti úr fínu færi en skotið ekki nægilega gott. Franko fer niður og heldur boltanum.
81. mín
Gestirnir fyrstir í þennan bolta og hreinsa.
81. mín
Hornspyrna sem heimamenn eiga.
Spyrnan góð og Bissi fyrstur í boltann. Fer af bakinu á honum, í varnarmann og afturfyrir. Önnur hornspyrna.
Spyrnan góð og Bissi fyrstur í boltann. Fer af bakinu á honum, í varnarmann og afturfyrir. Önnur hornspyrna.
77. mín
InnPatrekur Orri Guðjónsson
ÚtSævar Atli Hugason
76. mín
Kaotísk sókn endar með skoti frá Aroni Elí en boltinn vel yfir markið.
Gestirnir vildu vítaspyrnu í sömu sókn þegar Sævar Atli féll en ekkert dæmt. Sævar liggur hinsvegar eftir á plastinu.
Gestirnir vildu vítaspyrnu í sömu sókn þegar Sævar Atli féll en ekkert dæmt. Sævar liggur hinsvegar eftir á plastinu.
73. mín
InnRúnar Helgi Björnsson
ÚtHákon Atli Aðalsteinsson
Tvöföld breyting.
73. mín
InnÞröstur Mikael Jónasson
ÚtGunnlaugur Rafn Ingvarsson
72. mín
Gult spjald
Borja Lopez Laguna
Ljótt brot á miðjum vallarhelmingi gestanna. Lítið hægt að kvarta undan þessu spjaldi.70. mín
Skammt högga á milli og heimamenn í alvöru veseni.
Aron með sitt annað mark
Aron Jóhannsson
Sending með jörðinni frá hægri þar sem Aron er mættur inn í teig og skorar af stuttu færi.Skammt högga á milli og heimamenn í alvöru veseni.
69. mín
InnArnór Gauti Ragnarsson
ÚtAndri Freyr Jónasson
Fyrsta breyting leiksins. Hrein skipti.
66. mín
Þessi sókn Aftureldingar hinsvegar mjög góð. Sóttu hratt upp vinstra megin og boltinn berst á Aron J. fyrir utan teig D/R. Frábær hreyfing Arons til vinstri skapar pláss og nær hann góðu skoti að marki. Boltinn úti við stöng þar sem Franko nær ekki til og boltinn í netið.
Gestirnir komnir yfir á ný
Aron Jóhannsson
Boltinn gengið vallarhelminga á milli síðan heimamenn jöfnuðu.Þessi sókn Aftureldingar hinsvegar mjög góð. Sóttu hratt upp vinstra megin og boltinn berst á Aron J. fyrir utan teig D/R. Frábær hreyfing Arons til vinstri skapar pláss og nær hann góðu skoti að marki. Boltinn úti við stöng þar sem Franko nær ekki til og boltinn í netið.
60. mín
1-1 og allt jafnt.
Heimamenn jafna
Amin Guerrero Touiki (stoðsending: Breki Hólm Baldursson)
Spyrnan frá Áka skapaði vandræði fyrir Jökul sem blakar boltanum yfir sig og aðra. Alejandro lætur boltann vera þar sem Breki kom á ferðinni og setti boltann fast fyrir markið. Þar var Amin réttur maður á réttum stað og stýrði boltanum í markið.1-1 og allt jafnt.
60. mín
Varsla
Borja, spyrnumaður góður, tekur spyrnuna og Jökull þarf að hafa sig við að verja. Hornspyrna.
59. mín
Gult spjald
Sigurpáll Melberg Pálsson
Fyrir brotið á Breka.59. mín
Tilviljanakennd sókn endar með því að Breki fær aukaspyrnu við vítateigshornið.
Skotfæri fyrir góðan spyrnumann.
Skotfæri fyrir góðan spyrnumann.
55. mín
Laglegt spil gestanna endar með því að Andri Freyr fær boltann inni í teig D/R. Nær skotinu en boltinn í varnarmann og þaðan í hendur Franko.
53. mín
Gult spjald
Gunnlaugur Rafn Ingvarsson
Loks fór boltinn úr leik. Gunnlaugur fær spjald fyrir brotið á Aroni hér áðan.53. mín
Varsla
Elmar Kári keyrir inn að marki frá hægri. Nær góðu skoti úr þröngu færi en Franko gerir vel í að verja.
51. mín
Aron J. liggur eftir en sóknin heldur áfram. Boltinn berst út til vinstri á Hrannar sem nær skoti að marki. Boltinn beint í hendur Franko.
48. mín
Áki spyrnir boltanum fyrir en það eru grunsamlega margar bláar treyjur mættar inn í markteig.
Rangstaða.
Rangstaða.
47. mín
Gult spjald
Oliver Bjerrum Jensen
Breki Hólm með flottan sprett upp völlinn. Oliver tekur hann niður. Aukaspyrna og gult spjald.46. mín
Síðari hálfleikur
Heimamenn rúlla boltanum af stað.
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir leiða með einu
Afturelding fer sennilega verðskuldað marki yfir inn í hálfleikinn en D/R ógnaði heldur betur undir lok hálfleiksins og hefðu, með smá heppni, getað jafnað leikinn.
Nóg eftir. Spennandi fjörtíu og fimm mínútur framundan.
Nóg eftir. Spennandi fjörtíu og fimm mínútur framundan.
45. mín
Hörkufæri
+1
Hornspyrna Áka mjög góð í þetta skiptið. Borja mætir boltanum á nærstöng en Jökull nær að verja. Önnur hornspyrna en ekkert kemur úr henni.
Hornspyrna Áka mjög góð í þetta skiptið. Borja mætir boltanum á nærstöng en Jökull nær að verja. Önnur hornspyrna en ekkert kemur úr henni.
45. mín
+1
Áki með hörkuskot að marki með vinstri fæti. Boltinn hinsvegar nálægt Jökli sem slær boltann aftur fyrir.
Áki með hörkuskot að marki með vinstri fæti. Boltinn hinsvegar nálægt Jökli sem slær boltann aftur fyrir.
45. mín
D/R fær hornspyrnu.
Spyrnan frá Áka alls ekki góð og endar á fyrsta manni. Sókn heimamanna heldur áfram.
Spyrnan frá Áka alls ekki góð og endar á fyrsta manni. Sókn heimamanna heldur áfram.
44. mín
Aron J. tekur spyrnuna en heimamenn rísa hæst og skalla boltann burt.
44. mín
Gult spjald
Hákon Atli Aðalsteinsson
Fyrir brot á eigin vallarhelmingi. Gestirnir í fínni stöðu til að senda boltann inn í teig. Ákveða hinsvegar að spila stutt en sækja hornspyrnu.40. mín
Alejandro liggur eftir í grasinu. Vann boltann með stórgóðri tæklingu en virtist finna fyrir höggi.
Vonandi fyrir heimamenn að hann geti haldið leik áfram.
Vonandi fyrir heimamenn að hann geti haldið leik áfram.
37. mín
Aron J. með fyrirgjöf úr aukaspyrnu frá hægri. Franko gerir virkilega vel í að kýla boltann burt.
32. mín
Sævar Atli afar nálægt því að komast í dauðafæri. Bissi stöðvar hann á síðustu stundu.
29. mín
Stöng?
Góð sókn heimamanna upp vinstra megin. Fyrirgjöf inn í teig þar sem Borja kom á ferðinni. Nær skotinu með vinstri í fyrsta en boltinn, líklega af varnarmanni eða Jökli, og þaðan í stöng (mögulega) og afturfyrir. Þetta gerðist alveg hinumegin á vellinum svo það var erfitt að sjá.
Ekkert varð úr hornspyrnunni.
Ekkert varð úr hornspyrnunni.
28. mín
Snörp sókn Mosfellinga
Boltinn gengur manna á milli áður en Hrannar reynir að senda boltann Andra inni í teig en Alejandro kemst fyrir.
25. mín
Skot
Aron J. með tilraun fyrir utan teig. Boltinn vel yfir markið.
25. mín
Spyrnan ekkert sérstök frá Aroni J. Heimamenn hreinsa.
24. mín
Hrannar með góðan sprett upp vinstra megin. Sendi boltann fyrir en Bissi hreinsar.
Horn.
Horn.
22. mín
Gestirnir sækja mikið upp vinstra megin. Aron Elí verið á áætlun það sem af er upp kantinn.
20. mín
Breki brotlegur úti hægra megin. Gestirnir eiga aukaspyrnu úti við hliðarlínu.
Borja skallar boltann hinsvegar burt.
Borja skallar boltann hinsvegar burt.
17. mín
Sláin!
Georg, að mér sýndist kominn í færi inni í markteig D/R. Færið þröngt en skotið gott. Boltinn smellur í þverslánni og niður áður en heimamenn ná að hreinsa.
16. mín
Fátt um færi
Leikurinn er endanna á milli en fátt er um marktækifæri. Heimamenn átt álitlegar sóknir en hafa ekki náð að ógna marki Mosfellinga.
8. mín
Horn
D/R fær horn. Áki yfir boltanum.
Spyrnan fín en boltinn hárfínt yfir Alejandro á fjærstöng.
Spyrnan fín en boltinn hárfínt yfir Alejandro á fjærstöng.
5. mín
Gestirnir komnir yfir úr fyrstu alvöru sókn leiksins.
Þetta tók ekki langan tíma
Hrannar Snær Magnússon
Stórgóð fyrirgjöf frá hægri, inn í markteig þar sem Hrannar kom á ferðinni og skallaði boltann. Franko var í boltanum en inn lak hann.Gestirnir komnir yfir úr fyrstu alvöru sókn leiksins.
4. mín
Heimamenn halda vel í bolta í upphafi leiks. Bæði Amin og Hassan eru röskir og pressa hátt.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir hefja leik
Góða skemmtun.
Fyrir leik
Hér koma liðin
Liðin ganga inn á völl við lófatak og kynnt til leiks af einskærri snilld.
Fyrir leik
Upphitun lokið
Liðin hafa gengið til búningsherbergja til lokaundirbúnings. Styttist í fjörið.
Fyrir leik
Síðustu leikir
D/R vann botnbaráttuleikinn gegn Gróttu á Seltjarnarnesi í síðustu umferð á meðan Afturelding gerði jafntefli á móti Leikni frá Reykjavík í Mosfellsbæ.
Fyrir leik
Stórleikur
Leikur dagsins er gríðarlega mikilvægur báðum liðum. Heimamenn berjast fyrir lífi sínu á botni deildarinnar á meðan Mosfellingar vonast til að klifra upp deildina, en staða þeirra í deild verður að teljast vonbrigði.
Fyrir leik
Norðankaldi
Ágætlega viðrar á Dalvík í dag. Létt gola og úrkomulaust, en norðlenska sumarið hefur yfirgefið okkur.
Napurt.
Napurt.
Fyrir leik
Aðstoðardómarar: Eðvarð Eðvarðsson og Arnór Bjarki Hjaltalín. Eftirlitsmaður: Valdimar Pálsson.
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

Aðstoðardómarar: Eðvarð Eðvarðsson og Arnór Bjarki Hjaltalín. Eftirlitsmaður: Valdimar Pálsson.
Fyrir leik
Staðan í deildinni - Heil umferð í kvöld
1. Fjölnir - 32 stig
----------------------
2. ÍBV - 31
3. Keflavík - 27
4. Njarðvík - 26
5. ÍR - 26
----------------------
6. Afturelding - 21
7. Þróttur - 20
8. Þór - 18
9. Grindavík - 17
10. Leiknir - 16
----------------------
11. Dalvík/Reynir - 13
12. Grótta - 13
miðvikudagur 14. ágúst
18:00 Dalvík/Reynir-Afturelding (Dalvíkurvöllur)
18:00 ÍBV-ÍR (Hásteinsvöllur)
18:00 Grindavík-Þór (Stakkavíkurvöllur-Safamýri)
19:15 Þróttur R.-Grótta (AVIS völlurinn)
19:15 Njarðvík-Fjölnir (Rafholtsvöllurinn)
19:15 Leiknir R.-Keflavík (Domusnovavöllurinn)
----------------------
2. ÍBV - 31
3. Keflavík - 27
4. Njarðvík - 26
5. ÍR - 26
----------------------
6. Afturelding - 21
7. Þróttur - 20
8. Þór - 18
9. Grindavík - 17
10. Leiknir - 16
----------------------
11. Dalvík/Reynir - 13
12. Grótta - 13
miðvikudagur 14. ágúst
18:00 Dalvík/Reynir-Afturelding (Dalvíkurvöllur)
18:00 ÍBV-ÍR (Hásteinsvöllur)
18:00 Grindavík-Þór (Stakkavíkurvöllur-Safamýri)
19:15 Þróttur R.-Grótta (AVIS völlurinn)
19:15 Njarðvík-Fjölnir (Rafholtsvöllurinn)
19:15 Leiknir R.-Keflavík (Domusnovavöllurinn)
Fyrir leik
Þegar liðin mættust 8. júní vann Afturelding 4-3 sigur!
Afturelding 4 - 3 Dalvík/Reynir
1-0 Georg Bjarnason ('30)
1-1 Abdeen Temitope Abdul ('38)
2-1 Gunnar Bergmann Sigmarsson ('43)
3-1 Elmar Kári Enesson Cogic ('50, víti)
3-2 Abdeen Temitope Abdul ('60)
3-3 Amin Guerrero Touiki ('75)
4-3 Hrannar Snær Magnússon ('82)
Sjö marka leikur aftur á dagskrá?

Þegar liðin mættust 8. júní vann Afturelding 4-3 sigur!
Afturelding 4 - 3 Dalvík/Reynir
1-0 Georg Bjarnason ('30)
1-1 Abdeen Temitope Abdul ('38)
2-1 Gunnar Bergmann Sigmarsson ('43)
3-1 Elmar Kári Enesson Cogic ('50, víti)
3-2 Abdeen Temitope Abdul ('60)
3-3 Amin Guerrero Touiki ('75)
4-3 Hrannar Snær Magnússon ('82)
08.06.2024 17:05
Lengjudeildin: Afturelding hafði betur í sjö marka leik
Fyrir leik
Tveir í banni hjá Aftureldingu
Bjarni Páll Linnet Runólfsson er kominn með fjögur gul spjöld og Bjartur Bjarmi Barkarson með sjö. Þeir verða báðir í banni hjá Aftureldingu í kvöld.
Fyrir leik
Þýðir ekki að horfa á töfluna - En við gerum það samt
„Það þýðir ekkert að horfa á þessa töflu fyrr en mótið er búið. Við þurfum að einbeita okkur að okkur sjálfum og ná í eins flest stig og við getum. Eitt stig í dag, hefði viljað þrjú en næsta verkefni er bara Dalvík og við ætlum að fara þangað og ná í þrjú stig.“ sagði Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Leikni í síðustu umferð.
Afturelding er í sjötta sæti með 21 stig, fimm stigum frá umspilssæti.
Afturelding er í sjötta sæti með 21 stig, fimm stigum frá umspilssæti.
08.08.2024 23:13
Maggi: Hiti og tilfinningar í báðar áttir
Fyrir leik
Dalvíkingar að koma úr sigurleik
Dalvík/Reynir er í ellefta sæti deildarinnar að loknum 16 umferðum en liðið vann Gróttu 3-2 á útivelli í síðustu umferð. Það var aðeins annar sigurleikur Dalvíkinga.
„Þetta er frábært og mér líður eins og ég sé 25 kílóum léttari en ég var í morgun. Stórt hrós á strákana hvernig þeir spiluðu í dag því við höfum verið óheppnir í nokkrum leikjum núna upp á síðkastið. Við tókum þrjú stig í dag sem var bara frábært," sagði Dragan Stojanovic, þjálfari Dalvíkur/Reynis, eftir leikinn.
„Þetta er frábært og mér líður eins og ég sé 25 kílóum léttari en ég var í morgun. Stórt hrós á strákana hvernig þeir spiluðu í dag því við höfum verið óheppnir í nokkrum leikjum núna upp á síðkastið. Við tókum þrjú stig í dag sem var bara frábært," sagði Dragan Stojanovic, þjálfari Dalvíkur/Reynis, eftir leikinn.
10.08.2024 18:38
Segist vera 25 kílóum léttari eftir kærkominn sigur
Fyrir leik
Velkomin með okkur í beina textalýsingu frá Dalvíkurvelli þar sem Dalvík/Reynir fær Aftureldingu í heimsókn. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson flautar leikinn á klukkan 18.
Í beinni frá Dallas!

Velkomin með okkur í beina textalýsingu frá Dalvíkurvelli þar sem Dalvík/Reynir fær Aftureldingu í heimsókn. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson flautar leikinn á klukkan 18.






Afturelding gerði vel í að halda forustu sinni til loka leiks og góður tveggja marka sigur í höfn.
Takk fyrir samfylgdina. Þangað til næst.