SKÝRSLAN: Jafntefli í Árbænum
Hvað réði úrslitum?
Stuð og stemming í Árbænum í dag! Leikurinn byrjaði vel og komust gestirnir yfir eftir 9 mínútna leik. Heimakonur voru hins vegar ekki lengi að jafna en staðan var orðin 1-1 þremur mínútum síðar. Heill hellingur af færum litu dagsins ljós en á 40. mínútu komst Fylkir yfir eftir laglega afgreiðslu Helgu Maríu og leiddu því er liðin gengu til búningsherbergja. Gestirnir mættu sem mun grimmara liðið út í seinni hálfleikinn og voru búnar að jafna á 53. mínútu en þar var Sandra María Jessen aftur á ferðinni og skoraði sitt 20. mark á tímabilinu. Restin af seinni hálfleiknum var skemmtileg og fullt af færum og maður var alltaf að bíða eftir sigurmarkinu. Leikurinn endaði hins vegar 2-2 og deildu liðin stigunum.
Bestu leikmenn
1. Sandra María Jessen
Sandra María skoraði tvennu í dag! Tvö frábær mörk. Hún er bara alveg svakalega góð í fótbolta. Þvílík gæði sem hún sýndi í dag. Tuttugu mörk komin í sumar!
2. Helga Guðrún Kristinsdóttir
Sandra var ekki sú eina sem skoraði tvennu dag. Helga Guðrún skoraði einnig tvö mörk í dag og átti stórkostlegan leik!
Atvikið
Þetta seinna mark Söndru var algjör snilld. Frábært mark.
Hvað þýða úrslitin?
Þór/KA er enn í 3. sæti deildarinnar eftir leikinn í dag. Fylkir situr í 9. sætinu með 10 stig eftir daginn.
Vondur dagur
Skemmtilegur fótboltaleikur og virkilega erfitt að setja þetta á einhvern.
Dómarinn - 7,5
Flott frammistaða hjá Þórði og hans teymi í dag. Las leikinn vel og hélt flottri línu



