SKÝRSLAN: Dagur Ingi hetja KA manna á lokamínútunni
Hvað réði úrslitum?
Þetta var nokkuð jafn leikur þar sem bæði lið fengu færi til að vinna leikinn. Gæðin í Daníel Hafsteinssyni sem skilja liðin einfaldlega að í dag. Tvær góðar stoðsendingar hjá KA manninum.
Bestu leikmenn
1. Daníel Hafsteinsson (KA)
Daníel var með stoðsendingu í báðum mörkunum, og það góðar stoðsendingar. Burtséð frá því þá kom mikið úr honum sóknarlega, og hann átti að skora mark ef Haraldur Einar hefði ekki breyst í markmann í lok fyrri hálfleiks.
2. Dagur Ingi Valsson (KA)
Margir sem komu til greina í tvistinn í dag. Dagur fær að eiga þetta eftir kröftuga innkomu og fyrir að vera hetjan á lokamínútunni. Góður skalli hjá honum í markinu.
Atvikið
Vítaspyrna, ekki vítaspyrna? Í stöðunni 1-1 á 88. mínútu vilja Fram fá vítaspyrnu fyrir hendi á Ívar Örn. Boltinn fer af löppinni á honum, og skoppar upp í hendina. Það er engin spurning hvort boltinn fari í hendina á honum en ég held það sé rétt hjá Vilhjálmi Alvari dómara leiksins að í svona atviki eigi ekki að dæma.
Hvað þýða úrslitin?
KA menn fara að minnsta kosti tímabundið upp í 6. sæti deildarinnar. Stjarnan á eftir að spila við HK á morgun og eru tveimur stigum á eftir þeim, þannig það gæti breyst. Fram fellur niður í 7. sæti deildarinnar og missir KA einu stigi á undan sér. Gríðarlega þéttur pakki í baráttunni um topp 6 og aðeins 2 leikir eftir.
Vondur dagur
Enginn sem átti algjöran hauskúpu leik. Þá ætla ég bara að vera harður á einn besta leikmann deildarinnar. Hallgrímur Mar hefur átt betri leiki, kom lítið úr hans sóknar aðgerðum. Maður er bara farinn að búast við það miklu frá þessum leikmanni.
Dómarinn - 7
Erfitt að lasta Vilhjálm Alvar og hans teymi of mikið fyrir að missa af hendinni á Haraldi Einari í fyrri hálfleik þar sem það virtist bara enginn sjá það. Vítið sem Fram vildi svo fá seint í leiknum held ég að hafi verið rétt hjá honum, en það verða dómara fróðari menn að fá að segja til um það. Annars allt annað bara vel dæmt.




