SKÝRSLAN: Valur á toppnum þegar deildinni er skipt í tvennt
Hvað réði úrslitum?
Eins og Guðni sagði í viðtali eftir leikinn þá er Valur með ofboðslega mikil einstaklingsgæði. Þær létu ekki mark Hildigunnar á 15. mínútu leiksins á sig fá og voru fljótar að svara því. Þeim óx ásmegin eftir því sem leið á leikinn og unnu hann sanngjarnt
Bestu leikmenn
1. Fanndís Friðriksdóttir
Gríðarlega góð frammistaða hjá Fanndísi. Skoraði mark og fannst hún alltaf vera viðloðin við flestar sóknir Vals.
2. Berglind Rós Ágústsdóttir
Skoraði jöfnunarmarkið Vals skömmu eftir að FH komst yfir og átti svo geggjað mark undir lok leiksins. Góð frammistaða hjá henni á miðjunni.
Atvikið
Meiðslin hjá Breukelen. Batakveðjur til hennar!
Hvað þýða úrslitin?
Valur er á toppnum þegar deildinni er skipt í tvo hluta. Það þýðir að þær fá heimaleik í lokaumferð deildarinnar gegn Breiðabliki, sem gæti reynst þeim dýrmætt.
Vondur dagur
Breukelen fær þetta, en ekki af fótboltalegum ástæðum. Hún átti fínan leik en það er gríðarlega vont fyrir bæði hana og FH liðið að missa hana í meiðsli.
Dómarinn - 8
Góður leikur hjá dómarateyminu í dag. Ekkert hægt að setja út á dómgæsluna.




