Fotbolti.net
Besta deildin
Sævar Þór Sveinsson
Sævar Þór Sveinsson
Besta-deild kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
2 - 4
Valur
Valur
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir 15'1 - 01 - 118' Berglind Rós Ágústsdóttir 1 - 257' Jasmín Erla Ingadóttir1 - 373' Fanndís Friðriksdóttir 1 - 490' Berglind Rós Ágústsdóttir Berglind Freyja Hlynsdóttir 92'2 - 4
Dómari: Breki Sigurðsson
Áhorfendur: 343
Leik lokið!
Valur sigrar leikinn 4-1 í sanngjörnum sigri. Skýrsla og viðtöl á eftir.
FH
92. mín
MAAAARK!

Berglind Freyja Hlynsdóttir

Fyrirgjöf af hægri kantinum á fjærstöngina þar sem Berglind skallar boltann í netið.
90. mín
+3 í uppbótartíma
Valur
90. mín
VÁÁÁÁÁ

Berglind Rós Ágústsdóttir

Berglind fær boltann fyrir utan vítateiginn og hamrar honum í hægra hornið. Geggjað mark.
89. mín
Guðrún á skot á markið en Aldís ver það.
Valur
87. mín
InnGuðrún Elísabet Björgvinsdóttir
ÚtFanndís Friðriksdóttir
87. mín
Síðustu mínúturnar verið nokkuð rólegar.
FH
80. mín
InnBryndís Halla Gunnarsdóttir
ÚtAnna Nurmi
Valur
79. mín
Gult spjald

Anna Rakel Pétursdóttir

79. mín
Anna Rakel tekur spyrnuna sem ratar á Jasmíni. Hún skallar boltann beint á Aldísi.
78. mín
Valur fær aukaspyrnu á hægri kantinum
77. mín
Berglind fær boltann við vítateiginn í góðri stöðu en rennur eitthvað til í grasinu þegar hún skýtur og boltinn fer framhjá.
76. mín
Fanndís með skot sem fer í Anna Nurmi og endar í hornspyrnu. Ekkert kemur úr hornspyrnunni.
74. mín
Fanndís með gott skot sem er varið af Aldísi.
Valur
73. mín
MAAAARK!

Fanndís Friðriksdóttir

Fær boltann við D-bogann. Færir hann á milli hægri og vinstri lappar nokkrum sinnum áður en hún ákveður að skjóta á markið og boltinn endar í netinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur
72. mín
InnBerglind Björg Þorvaldsdóttir
ÚtNadía Atladóttir
71. mín
Fanndís á skot af 20 metrum sem fer framhjá markinu.
FH
69. mín
InnBerglind Freyja Hlynsdóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
FH
69. mín
InnHanna Kallmaier
ÚtValgerður Ósk Valsdóttir
68. mín
Fanndís tekur spyrnuna sem ratar á Katie. Hún skallar á markið en Aldís ver. Boltinn berst síðan út úr teignum og aftur á Fanndísi sem gefur boltann fyrir. Núna á Jasmín skalla sem fer beint á Aldísi.
68. mín
Valur fær hornspyrnu
62. mín
Anna Rakel tekur spyrnuna og skýtur á markið en boltinn fer yfir.
FH
62. mín
Gult spjald

Valgerður Ósk Valsdóttir

Brýtur á Jasmíni rétt fyrir framan D-bogann.
59. mín
Jasmín á fyrirgjöf af vinstri kantinum til Fanndísar sem er við D-bogann. Hún skýtur á markið en skotið er lélegt og fer beint á Aldísi.
Valur
57. mín
Valur tekur forystu

Jasmín Erla Ingadóttir

Fær háan bolta til sín, tekur hann niður rétt við vítateiginn með bakið í markið. Snýr sér yfir á hægri fótinn og skýtur í vinstra hornið niðri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH
56. mín
Gult spjald

Elísa Lana Sigurjónsdóttir

Togar Ragnheiði niður.
53. mín
Elísa tekur spyrnuna en Valur nær að hreinsa boltann.
52. mín
FH fær hornspyrnu
51. mín
Jasmín með skot rétt við vítateiginn sem fer framhjá.
Valur
47. mín
Gult spjald

Berglind Rós Ágústsdóttir

Fyrir brot á Valgerði.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
FH
46. mín
InnMargrét Brynja Kristinsdóttir
ÚtHildur Katrín Snorradóttir
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið. Valur sterkari aðilinn en FH-ingar hafa staðið ágætlega í hárinu á þeim.
45. mín
+6
Valur fær hornspyrnu sem Anna Rakel tekur en Valgerður hreinsar boltann.
45. mín
+4
Anna Rakel tekur spyrnuna en FH nær að hreinsa boltann.
45. mín
+4
Valur fær hornspyrnu.
45. mín
+9 í uppbótartíma
FH
45. mín
InnSelma Sól Sigurjónsdóttir
ÚtBreukelen Lachelle Woodard
44. mín
Breukelen borinn af velli í börum.
39. mín
Mér sýnist að það sé verið að hringja á sjúkrabíl.
37. mín
Leikurinn stöðvaður
Breukelen fær aðhlynningu. Virðist snúa eitthvað upp á hnéð.
31. mín
Anna tekur spyrnuna sem Aldís nær að kýla í burtu. Boltinn berst aftur til Fanndísar sem sendir boltann inn í teig á Katie sem skýtur framhjá markinu.
30. mín
Valur fær hornspyrnu
Fanndís á skot á markið sem Aldís nær ekki að handsama. Boltinn lekur þá út í teiginn og Jónína hreinsar í hornspyrnu.
29. mín
Valgerður brýtur á Berglindi miðsvæðis, stuðningsmenn kalla eftir gulu en er ekki alveg sammála því.
27. mín
Anna Rakel tekur spyrnuna en FH hreinsar.
26. mín
Valur fær hornspyrnu
Ragnheiður á hörkuskot vinstra megin í teignum sem Aldís ver í hornspyrnu.
25. mín
Spyrnan fór beint á Aldísi í markinu.
24. mín
Valur fær aukaspyrnu í góðu skotfæri ca. 20 metrum frá marki.
23. mín
Valur fékk aukaspyrnu á hægri kantinum sem Fanndís tekur. Spyrnan fer inn í teiginn þar sem Natasha á skalla rétt yfir markið.
Valur
18. mín
Valskonur jafna

Berglind Rós Ágústsdóttir (stoðsending: Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir)

Ragnheiður með fyrirgjöf við endamörk vallarins vinstra megin inn í teig þar sem Berglind stendur ódekkuð við vítapunktinn og slúttar vel í markið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

17. mín
Anna Rakel tók spyrnuna en FH nær að hreinsa boltann.
16. mín
Valur fær hornspyrnu
FH
15. mín
ÞVÍLÍKT MARK

Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (stoðsending: Breukelen Lachelle Woodard)

Breukelen er með boltann við vítateiginn og gefur hann á HIldigunni sem stendur við D-bogann. Hún skýtur í fyrsta og boltinn svoleiðis svífur inn í netið vinstra megin. Geggjað mark!

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

13. mín
Fanndís tekur spyrnuna en ekkert kemur úr henni.
13. mín
Valur fær aukaspyrnu
Jasmín sækir aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu á hægri kantinum.
9. mín
Fanndís með góða fyrirgjöf inn í teiginn en bæði Nadía og Ragnheiður missa af boltanum.
6. mín
Anna Rakel tekur spyrnuna en FH nær að hreinsa hana.
6. mín
Valur fær hornspyrnu
3. mín
Fyrsta færi leiksins!
Anna Nurmi missir boltann til Hailey miðsvæðis sem rekur boltann áfram og reynir síðan skot við D-bogann sem Aldís ver út í teiginn vinstra megin. Þar mætir Ragnheiður sem reynir skot en það fer framhjá marki.
Fyrir leik
Leikur hafinn
FH byrjar með boltann og það er Snædís sem sparkar okkur af stað.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völl
FH í hvítum treyjum og svörtum stuttbuxum. Valur í rauðum treyjum og hvítum stuttbuxum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Guðni Eiríksson, þjálfari FH, gerir eina breytingu á byrjunarliðinu frá endurkomusigrinum gegn Keflavík í síðustu umferð. Hildur Katrín Snorradóttir kemur inn í byrjunarliðið í stað Hanna Kallmaier sem tekur sér sæti á bekknum.

Pétur Pétursson, þjálfari Vals, gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá sigrinum gegn Fylki í síðustu umferð. Anna Rakel Pétursdóttir, Nadía Atladóttir og Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir koma inn í byrjunarliðið. Elísa Viðarsdóttir, Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir og Ísabella Sara Tryggvadóttir taka sér sæti á bekknum í þeirra stað.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Björg Gunnlaugsdóttir, leikmaður FHL, sér um að spá í leiki dagsins í Bestu deild kvenna. Björg og liðsfélagar hennar hafa átt frábært sumar en FHL hefur tryggt sér sigur í Lengjudeildinni og mun leika í Bestu deildinni næsta sumar.

FH 1 - 2 Valur
Ég held að FH gefur ekkert eftir á móti bikameisturunum en Valur klárar þennan leik. Jasmín og Guðrún Elísabet skora fyrir Val og Snædís fyrir FH.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Síðasta umferðin fyrir skiptingu
Leikurinn í dag er sá síðasti áður en deildinni er svo skipt í tvennt. Bæði lið munu vera í efra hlutanum eftir skiptingu.

1. Valur 46 stig
2. Breiðablik 45 stig
3. Þór/KA 29 stig
4. Víkingur R. 29 stig
5. FH 25 stig
6. Stjarnan 21 stig
7. Þróttur R. 20 stig
8. Tindastóll 12 stig
9. Fylkir 9 stig
10. Keflavík 9 stig
Fyrir leik
Dómarateymið í dag
Breki Sigurðsson er með flautuna í dag. Honum til halds og trausts á hliðarlínunum eru þeir Daníel Ingi Þórisson og Óliver Thanh Tung Vú. Ásgeir Viktorsson er varadómari og eftirlitsmaður er Ólafur Ingi Guðmundsson.

Fyrir leik
Velkomin!
Komið sæl kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá 18. umferð í Bestu deild kvenna þar sem FH tekur á móti Val í Kaplakrikanum.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.