SKÝRSLAN: Njarðvík á toppinn eftir þægilegan sigur á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Njarðvík kláraði flest færi sem þeir fengu en hefðu alveg getað bætt við fleiri mörkum. Selfoss þarf að fara nýta sér þau færi sem þeir fá í leiknum ef þeir ætla að halda sér uppi í Lengjudeildinni
Bestu leikmenn
1. Oumar Diouck (Njarðvík)
Skoraði tvö og lagði upp eitt. Var allt í öllu í fyrri hálfleik en sást aðeins minna til hans í seinni. Hefði getað kórónað leikinn sinn með þrennu
2. Aron Snær Friðriksson (Njarðvík)
Var frábær í markinu í dag og steig varla feilspor í markinu. Hefði líklega verið maður leiksins ef hann hefði fengið tækifæri til að sýna sig á stærri momentum
Atvikið
Leikplan Selfoss var að liggja í low block en þegar að Oumar Diouck kemur Njarðvík snemma yfir þurftu Selfyssingar strax að breyta planinu og stíga ofar á völlinn sem opnaði leikinn mikið sem hentaði Njarðvík
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvík fer á topp deildarinnar en Selfyssingar í 10. sæti einu stigi fyrir ofan Fjölni sem sitja í fallsæti ásamt Leikni
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir Selfyssinga heilt yfir. Bæði sóknar- og varnarleikurinn ekki uppá marga fiska en náðu þó að koma sér í færin. Til að halda sér uppi þurfa þeir þó að fara að skora úr þeim færum sem þeir fá og vonandi fer það að ganga upp í næstu leikjum
Dómarinn - 9
Ekki hægt að setja mikið út á dómgæsluna í dag. Leikmenn kvörtuðu lítið og mikið flæði var í leiknum


