Fotbolti.net
@BaldvinBorgarsBaldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Lengjudeild karla
Fjölnisvöllur
Fjölnir
Fjölnir
0 - 3
ÍR
ÍR
0 - 110' Arnór Sölvi Harðarson0 - 216' Sigurður Karl Gunnarsson0 - 345' Renato Punyed Dubon
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: ÍR lék sér að bráðinni í fyrri og myrti hana í seinni

Hvað réði úrslitum?

ÍR-ingar léku á alls oddi í fyrri hálfleik, skoruðu góð mörk á meðan Fjölnismenn gerðu sig aldrei líklega og var staðan 0-3 í hálfleik og brekkan líklega í 90° halla fyrir heimamenn, í seinni hálfleil gjörsamlega drápu gestirnir leikinn, Fjölnismenn fengu að prófa sína eigin bolta talsvert meira í seinni en voru samt aldrei líklegir til þess að breyta þessu í spennu.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Karl Gunnarsson - ÍR

Það strönduðu ansi margar fyrirgjafir Fjölnis á Kalla, Máni Austmann sá ekki til sólar þrátt fyrir bongó og kremið á kökuna, þá stangaði Kalli eina hornspyrnu í netið, stórkostlegur.

2. Alexander Kostic - ÍR

Umferðarstjórinn á miðjunni, öflugur varnarlega, frábær sóknarlega, stórkostlegur karakter og drifkraftur, eigum við að segja sonur föður síns? Já.

Atvikið

Vítaspyrnudómurinn, miðað við línuna í leiknum þar sem Palli var að leyfa contact og flauta lítið, þá virtist vítið vera ansi soft eins og maður segir, þar er bara contact í gangi inní teig og Bergvin fellur, samkvæmt mínum bestu heimildum tekur AD2, Andri Vigfússon þessa ákvörðun og mér finnst hún alls ekki í takti við línuna sem Palli setti úti á velli.

Hvað þýða úrslitin?

ÍR-ingar syngja og tralla við topp deildarinnar meðan Fjölnismenn syrgja og sleikja sárin við botn deildarinnar.

Vondur dagur

Máni Austmann tók varla þátt í þessum leik, Orri Þórhalls virkaði ekki í standi nýkominn heim frá USA, Reynir Haralds ekki upp á sitt besta og svo þurfa reynsluboltar Fjölnis heldur betur að stíga upp, mér fannst þetta karakterslaust, dauft og ógeðslega lélegt.

Dómarinn - 5

Ég dreg tríóið niður fyrir þennan vítadóm, leikurinn fékk að fljóta og ÍR naut þess að spila sinn leik sem er physical við litla kátínu Fjölnismanna, en mér fannst leikurinn bara vel dæmdur fyrir utan vítið, Andri þarf að taka það á kassann en mögulega var það bara pjúra víti þar sem ég var langt frá atvikinu og ef svo er, og mín tilfinning er röng þá gef ég þeim 8 til vara.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.