Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild karla
Boginn
Þór
Þór
4 - 1
Fylkir
Fylkir
Clement Bayiha 14'1 - 01 - 154' Tumi Fannar GunnarssonIbrahima Balde 55'2 - 1Sverrir Páll Ingason 90'3 - 1Sigfús Fannar Gunnarsson 92'4 - 1
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson

SKÝRSLAN: Þórsarar frábærir í Boganum

Hvað réði úrslitum?

Þórsarar voru með yfirhöndina nær allan leikinn og unnu að lokum sanngjarnan sigur.

Bestu leikmenn

1. Sigfús Fannar Gunnarsson

Þvílík hætta sem skapasat í hvert sinn sem hann fær boltann. Skoraði sitt sjöunda mark í deildinni.

2. Orri Sigurjónsson

Alvöru leiðtogi aftast. Mikið öryggi í kringum hann, setur tóninn fyrir restina af liðinu. Clement Bayiha og Ibrahima Balde einnig frábærir.

Atvikið

Þórsarar fengu jöfnunarmark á sig snemma í seinni. Svöruðu því hins vegar strax sem var virkilega sterkt fyrir heimamenn.

Hvað þýða úrslitin?

Þór er með tíu stig en Fylkir er aðeins með fimm stig eftir fimm umferðir.

Vondur dagur

Eyþór Wöhler sást mjög lítið og virkaði ekki í takt við leikinn. Maður býst við meiru frá honum.

Dómarinn - 6

Það voru tveir dómarar í leiknum í kvöld. Bergvin Fannar Gunnarsson meiddist eftir hálftíma leik en hann gerði vel fram að því. Sveinn Arnarsson tók við og var heilt yfir flottur, frá mínu sjónarhorni séð hefði hann hins vegar átt að reka Orra Svein Segatta af velli þegar hann tók Sigfús Fannar úr jafnvægi með því að halda í hann þegar hann var að sleppa í gegn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.