Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Lengjudeild karla
Kórinn
Bongó og logn inn í Kórnum
HK
HK
4 - 1
Selfoss
Selfoss
Jóhann Þór Arnarsson 24'1 - 0Tumi Þorvarsson 35'2 - 0Dagur Orri Garðarsson 51'3 - 03 - 184' Sesar Örn HarðarsonJóhann Þór Arnarsson 87'4 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: HK-ingar hitna

Hvað réði úrslitum?

Selfyssingar byrjuðu leikinn mun betur, fengu stórhættuleg færi í upphafi leiks. Við fyrsta mark HK fannst mér þeir taka yfir leikinn. Gæðin fyrir framan markið eru mikil hjá HK-ingum, öfugt við mótherja þeirra en það virtist sem svo að Selfyssingum hafi verið fyrirmunað að skora.

Bestu leikmenn

1. Jóhann Þór Arnarsson

Jóhann ótrúlegur í dag, líklegast ömurlegt að vera varnarmaður gegn honum, skoraði einnig tvö frábær mörk sem skemmdu ekki fyrir.

2. Aron Kristófer Lárusson

Mér fannst Aron mjög flottur í miðverði í dag. Sóknarmenn fá oft hrósið en nú er tími til kominn að gefa varnarmönnum smá pláss.

Atvikið

Arnar Freyr Ólafsson markvörður HK fór af velli eftir aðeins um 9. mínútur. Þá hafði hann þegar nokkrum sinnum varið vel.

Hvað þýða úrslitin?

HK tengir tvo sigra saman og eru nú komnir í þriðja sætið með ellefu stig. Slæmt gengi Selfyssinga heldur áfram en þeir eru á botni deildarinnar með 3 stig.

Vondur dagur

Vörn Selfyssinga hefur verið slök í byrjun sumars, engin breyting var á því í dag. Reynir Freyr og Daði Kolviður voru í hjarta varnarinnar en þeir áttu erfitt með Jóhann Þór og seinna meir Dag Orra.

Dómarinn - 9

Ég sá ekkert athugunarvert við dómgæslu kvöldsins, vel gert Jóhann Ingi og félagar!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.