SKÝRSLAN: Tóku Bogann og gerðu hann að sínum
Hvað réði úrslitum?
Stemningin, áræðnin, ákveðnin, baráttan, öll þessi atriði voru Völsungs megin fannst mér og sigurinn verðskuldaður. Völsungsliðið er betur spilandi en ég bjóst við og vel þjálfað, þegar liðið nær upp stemningu er nóg af gæðum til að gera flotta hluti með boltann. Gestirnir náðu svolítið að kæfa heimamenn á köflum með því einfaldlega að berjast meira og vilja þetta meira. Að sama skapi var þetta andlaust hjá heimamönnum sem virkuðu ekki almennilega tilbúnir í þennan nágrannaslag og lentu á vegg. Stuðningur Húsvíkinga í stúkunni var öflugur og gerðu þeir Bogann að sínum heimavelli í dag.
Bestu leikmenn
1. Ívar Arnbro Þórrhallsson
Ívar var virkilega öruggur á milli stanganna og ekki verri í því að koma út og grípa inn í. Mjög sannfærandi frammistaða hjá þessum efnilega markmanni sem fæddur er 2006.
2. Arnar Pálmi Kristjánsson
Mjög margir sem koma til greina, Albi, Rafnar, Jakob Héðinn, Elvar... ég gæti talið upp fleiri. Xabi líka með tær stoðsendingar. Arnar Pálmi fór fyrir sínum mönnum í dag, sóknarsinnaður vinstri bakvörður sem prófaði að nota hægri fótinn í dag og smellhitti svoleiðis boltann.
Atvikið
Það eru nokkur en mér fannst varslan frá Ívari gegn Sverri Páli í Þór í stöðunni 1-0 mjög mikilvæg.
Hvað þýða úrslitin?
Þriðji sigur Völsungs staðreynd, horft var á Völsung sem líklegasta liðið til að falla fyrir mót en Húsvíkingar eru heldur betur að bíta frá sér. Annað tap Þórs og bæði hafa komið á heimavelli. Þórsarar að spila í Boganum en hann einungis gefið fjögur stig af tólf.
Vondur dagur
Baráttan og 'transition' vörn Þórs fannst mér mjög léleg. Ef það var ekki einn langur þá var það seinni bolti sem vannst ekki og Völsungur gat keyrt á varnarlínuna. Fannst ekki mikið til Yann Affi koma, sérstaklega fannst mér varnarleikurinn í þriðja marki Völsungs lélegur, en þá er ég samt kannski að taka af Jakob Héðni sem gerði vel í að klára þetta færi.
Dómarinn - 6
Ekki frábært en alls ekkert hræðilegt. Erfiður leikur að dæma og stundum var dæmt á hluti sem var svo ekki dæmt á seinna í leiknum, eða öfugt, en þannig er það reyndar langoftast. Fannst halla á hvorugt liðið sem er það mikilvægasta í þessu.



